Lífið

Stórglæsilegt 280 fermetra einbýlishús eftir Manfreð Vilhjálmsson til sölu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eignin er glæsileg á einum besta stað í borginni.
Eignin er glæsileg á einum besta stað í borginni.
Glæsilegt einbýlishús við Laugarásveg er nú komið á söluskrá en húsið er teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni. Kaupverðið er óljót og þurfa áhugasamir að koma fram með tilboð í eignina. Fasteignamatið er 68 milljónir

Húsið stendur á lóð sem er um þúsund fermetrar að stærð og er aðkoman að húsinu bæði frá Laugarásvegi og Sunnuvegi.

Eignin er um 280 fermetrar og var húsið byggt árið 1969. Í því eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi.

Það er ljóst á hönnun þess að það er teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni sem er einn þekktasti arkitekt landsins og hefur hann sett sinn svip á borgarlífið síðastliðna áratugi með teikningum sínum.

Hér að neðan má sjá myndir af þessu glæsilega húsi í Laugardalnum.

Skemmtileg hönnun.
Mjög framandi og fallegur stigagangur.
Setustofan virkilega björt og falleg.
Fallegt sjónvarpshol.
Efri hæðin er sérstaklega björt og þar leika gluggar hússins aðalhlutverkið.
Alls eru tvö baðherbergi í húsinu.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×