Innlent

Jakob Möller situr áfram og metur dómaraefni í næstu umferð

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Jakob Möller formaður dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti sem starfar samkvæmt lögum um dómstóla.
Jakob Möller formaður dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti sem starfar samkvæmt lögum um dómstóla.
Jakob Möller hefur verið valinn af Hæstarétti Íslands til að vera settur formaður dómnefndar um hæfni umsækjanda um dómaraembætti vegna skipunar eins dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem auglýst var 17. nóvember. Gunnlaugur Claessen og Greta Baldursdóttir víkja sæti úr nefndinni „vegna tímabundinna anna.“

Þetta kemur fram í tölvupósti til umsækjenda um dómaraembættið sem fréttastofan hefur undir höndum. Þess má geta að Gunnlaugur Claessen lét af störfum sem hæstaréttardómari í ágúst 2013 sökum aldurs og er í reynd sestur í helgan stein.

Alls sótti 31 um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem auglýst var laust til umsóknar 17. nóvember síðastliðinn. Á meðal umsækjenda eru margir þeir sömu og sóttu um dómaraembætti við síðustu skipun.

Umsóknarfrestur rann út 11. desember. Í tölvupósti sem barst umsækjendum í gær segir: „Upplýst er um að Gunnlaugur Claessen, formaður nefndarinnar, og Greta Baldursdóttir, varamaður hans, hafa bæði vikið sæti við meðferð málsins fyrst og fremst vegna tímabundinna anna. Í því ljósi óskaði ráðuneytið þess að Hæstiréttur Íslands tilnefndi einstakling til að taka sæti í dómnefndinni ad hoc við meðferð málsins. Samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar hefur dómsmálaráðherra sett Jakob R. Möller, hæstaréttarlögmann, sem formann dómnefndarinnar við meðferð málsins.“

Þá er greint frá því að Óskar Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður, hafi einnig vikið sæti í nefndinni vegna tengsla við einn umsækjanda og tekur varamaður hans Guðrún Björk Bjarnadóttir, hæstaréttarlögmaður, sæti í nefndinni í hans stað. Aðrir nefndarmenn eru Kristín Benediktsdóttir, dósent, Ragnheiður Harðardóttir, landsréttardómari, og Ragnhildur Helgadóttir, prófessor.

Hæstiréttur Íslands virðist ekki telja að tilnefning Jakobs Möllers rýri trúverðugleika umsagnarferlisins eða það traust sem er talið nauðsynlegt að ríki um dómskerfið í landinu.
Nokkur styr hefur staðið um síðustu umsögn dómnefndarinnar um umsækjendur um embætti héraðsdómara en þá var Jakob Möller einnig settur formaður nefndarinnar. Gerði Guðlaugur Þór Þórðarson, settur dómsmálaráðherra, alvarlegar athugasemdir við umsögnina og taldi hana óskýra og illa rökstudda. Þá taldi hann svör nefndarinnar við fyrirspurn „gefa litlar sem engar upplýsingar um það hvernig mati nefndarinnar var háttað.“ Gerði hann grein fyrir athugasemdum sínum í bréfi til nefndarinnar og lýsti óánægju með umsagnarferlið og svör nefndarinnar í öðru bréfi til Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra um leið og hann skipaði dómara í samræmi við umsögn nefndarinnar. Guðlaugur Þór sagði að hann teldi mikilvægt að skoða aðkomu leikmanna að umsagnarferlinu að danskri fyrirmynd til að draga úr hættu á „klíkumyndun í vali dómara.“ Dómsmálaráðherra brást við athugasemdum hans og sagði í viðtali að hún teldi mikilvægt að endurskoða reglurnar um störf dómnefndarinnar og eftir atvikum einnig ákvæði laga um dómstóla.

Hæstiréttur Íslands virðist ekki telja að umfjöllun fjölmiðla og athugasemdir ráðherra rýri trúverðugleika umsagnarferlisins með Jakob Möller sem settan formann dómnefndarinnar í ljósi ákvörðunar um að tilnefna hann að nýju. Þá virðist rétturinn ekki heldur telja að það sé til þess fallið að draga úr trausti í garð dómskerfisins í landinu. Ekki liggur fyrir hvort tilteknir umsækjendur muni fara fram á að Jakob víki sæti vegna vanhæfis. 


Tengdar fréttir

Ráðherra mun birta svarbréf dómnefndar

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um átta stöður héraðsdómara hefur óskað eftir því við Guðlaug Þór Þórðarson, settan dómsmálaráðherra, að svarbréf nefndarinnar við bréfi ráðherra verði birt á vef ráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×