Innlent

Skjálftar í Bárðarbungu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bárðarbunga í Vatnajökli.
Bárðarbunga í Vatnajökli. Magnús Tumi Guðmundsson
Tveir skjálftar mældust í Bárðarbungu á tíunda tímanum í morgun. Báðir voru suð- eða suðaustur af Bárðarbungu.

Sá fyrri mældist 3,5 stig, á 5,3 kílómetra dýpi um 2,7 kílómetra suðaustur af Bárðarbungu. Sá síðari mældist 3,3 stig, á 6,8 kílómetra dýpi um 5,1 kílómetra aust-suðaustur af Bárðarbungu.


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×