Innlent

Veirusmit í agúrkurækt hér á landi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Veiran smitar ekki menn og stafar almenningi ekki hætta af neyslu agúrka.
Veiran smitar ekki menn og stafar almenningi ekki hætta af neyslu agúrka. Vísir/Getty
Matvælastofnun hefur borist tilkynning um veirusmit á tveimur búum í agúrkurækt á Suðurlandi. Óljóst er hve útbreidd veiran er eða hve mikið tjón getur hlotist af sýkingu á þessum tímapunkti. Veiran smitar ekki menn og stafar almenningi ekki hætta af neyslu agúrka.

Matvælastofnun skipuleggur nú sýnatökur til að kanna frekari útbreiðslu og beinir þeim tilmælum til ræktenda að gæta ýtrustu smitvarna. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun nefnist veiran sem um ræðir cucumber green mottle mosaic virus eða CGMMV og er af ættkvísl Tobamoveira. Veiran hefur greinst víða í Evrópu.

Mikilvægt að takmarka útbreiðslu

Veiran getur smitast milli plantna með snertingu, til dæmis með höndum, áhöldum eða fötum og getur einnig dreifst með fræi. Aðrar smitleiðir eru sýktar ungplöntur, afskornir plöntuhlutar, pökkunarefni og ávextir. Veiran getur lifað á fatnaði í allt að mánuð samkvæmt Matvælastofnun. Ekki er ástæða til að ætla að veiran breiðist út fyrir gróðurhúsarækt.

Einkenni sýkingar eru breytileg milli árstíða en meðal einkenna eru gulleit laufblöð, gult og grænt mósaík munstur á laufblöðum, misvöxtur ávaxta og dauði plantna. 

Mikilvægt er að takmarka útbreiðslu veirunnar eins og mögulegt er og vill Matvælastofnun beina því til ræktenda, sem og annarra sem við á, að gæta fyllsta hreinlætis þegar komið og farið er frá ræktunarstöðum. Forðast skal allan samgang milli ræktunarstaða. Matvælastofnun alla ræktendur til að kynna sér sóttvarnir og innleiða þær eftir fremsta megni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×