Handbolti

Svíar með sigur í síðasta leik fyrir EM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kristján Andrésson mætti Íslandi tvisvar í Höllinni í nóvember. Liðin mætast í Split í Króatíu á föstudag
Kristján Andrésson mætti Íslandi tvisvar í Höllinni í nóvember. Liðin mætast í Split í Króatíu á föstudag vísir
Svíar unnu Ungverja með tveimur mörkum í vináttuleik í handbolta í dag.

Lærisveinar Kristjáns Andréssonar voru yfir 18-14 í hálfleik en lokatölur urðu 31-29.

Simon Jepsson var markahæstur með 8 mörk fyrir Svía og Jerry Tollbring skoraði 5. Hjá Ungverjum var Donat Bartók atkvæðamestur en hann skoraði 6 mörk.

Leikurinn var sá síðasti í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið, en þar eru Íslendingar fyrstu andstæðingar Svía á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×