Innlent

Þrír af hverjum fjórum styðja ríkisstjórnina

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á sínum fyrsta ríkisráðsfundi.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á sínum fyrsta ríkisráðsfundi. Vísir/Ernir
Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að næstum þrír af hverjum fjórum sem tóku afstöðu styðja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Aðeins ein ríkisstjórn hafði meiri stuðning í upphafi stjórnartíðar sinnar en það var ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem mynduð var í lok maí 2007.

Litlar breytingar eru á fylgi flokka og breytist fylgi þeirra um á bilinu 0,3 – 1,5 prósentustig. Rúmlega fjórði hver segist myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 17% Vinstri græn, tæplega 16% Samfylkinguna, nær 12% Framsóknarflokkinn, liðlega 10% Pírata, tæplega 7% Viðreisn, um 6% Miðflokkinn, rúmlega 5% Flokk fólksins og ríflega 2% aðra flokka, þar af rúmlega 1% Bjarta framtíð.

Tæplega sjö prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp. Fimm prósent svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×