Sport

Sneri aftur á tennisvöllinn fjórum mánuðum eftir barnsburð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Serena Williams er hvergi nærri hætt.
Serena Williams er hvergi nærri hætt. vísir/getty
Serena Williams sneri aftur á tennisvöllinn í dag, fjórum mánuðum eftir barnsburð.

Williams mætti þá Jelenu Ostapenko í æfingaleik í Abú Dabí. Sú lettneska hafði betur, 6-2 3-6 (10-5).

Williams hefur ekki keppt síðan hún vann Opna ástralska í janúar á þessu ári. Williams eignaðist sitt fyrsta barn í september.

Líklegt þykir að Williams freisti þess að verja titil sinn á Opna ástralska sem fer fram í næsta mánuði.

Williams hefur unnið 23 risamót á glæsilegum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×