Innlent

Fremur hægur vindur í kvöld

Anton Egilsson skrifar
Frost verður um allt land í kvöld.
Frost verður um allt land í kvöld. Vísir/Anton
Búast má við köldum norðaustlægum áttum á landinu næstu daga. Él um landið norðaustanvert, en skýjað með köflum eða bjartviðri sunnan- og vestanlands. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Þar kemur jafnframt fram að fremur hægur vindur verði í kvöld, gamlárskvöld, dálítil él um landið norðaustanvert, en léttskýjað að mestu í öðrum landshlutum.

Þá verður frost um allt land, mest í innsveitum. Bætir síðan heldur í vind á þriðjudag, en lægir aftur á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×