Innlent

Stærsti dagur ársins í fjáröflun björgunarsveitanna

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Á sjöunda þúsund sjálfboðaliða koma að flugeldasölu björgunarsveitanna.
Á sjöunda þúsund sjálfboðaliða koma að flugeldasölu björgunarsveitanna. vísir/vilhelm
Gamlársdagur er stærsti dagur ársins í fjáröflun björgunarsveitanna og flugeldasala hefur farið nokkuð vel af stað í ár. Jón Svanberg, framkvæmdastjóri Landsbjargar, segir að útköll björgunarsveitanna í ár, sem voru rúmlega þúsund, hafi verið óvenju krefjandi.  

Eins og vitað er sprengja Íslendingar gamla árið upp með miklum krafti. Flugeldasölur opnuðu víða í vikunni en gamlársdagur er að jafnaði langstærsti söludagurinn.Jón Svanberg, framkvæmdastjóri slysavarnarfélagsins Landsbjargar, segir að salan hafi farið nokkuð vel af stað í ár. 

„Það náttúrulega kemur yfirleitt ekki í ljós fyrr en á milli tólf og fjögur á gamlársdag hvernig salan verður því stór hluti sölunnar fer fram á þessum tíma. Ég á von á því að það verði mikið að gera hjá okkur á öllum sölustöðum í dag,“ segir Jón. 

Skiptir björgunarsveitirnar gríðlarega miklu máli

Jón segir að flugeldasalan sé ein helsta tekjuöflun björgunarsveitanna sem eru 93 um allt land.

„Hjá sumum sveitunum er þetta stærsti partur veltunnar á hverju ári og skiptir sveitina gríðarlega miklu máli,“ segir Jón.

Hann segir að árið hafi verið gríðarlega annasamt og að útköllin hafi verið rúmlega þúsund.

„Við erum að sjá mun meira af meira krefjandi verkefnum. Til dæmis rútuslysið sem var um daginn. Þar vorum við með yfir 60 manns að vinna í marga klukkutíma. Og í byrjun ársins þá var gríðarlega stór og umfangsmikil leit,“ segir Jón.

Mörg útköll sveitanna tengist umferð á landinu.

„Vegakerfið okkar er kannski ekki alveg í stakk búið til að takast á við alla þessa umferð sem er þar og því miður sjáum við það í nokkrum af okkar verkefnum,“ segir Jón að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×