Innlent

Guðni forseti gerður heiðursdoktor í London

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson var í gær sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Queen Mary, University of London.
Guðni Th. Jóhannesson var í gær sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Queen Mary, University of London. Myndir/Forseti.is
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var í gær gerður að heiðursdoktor við Queen Mary, University of London. Guðni stundaði þar doktorsnám og lauk prófum árið 2004. Doktorsritgerð hans fjallaði um fiskveiðideilur á Norður-Atlantshafi 1948-1964 og má lesa hana á vefsíðu skólans

Við útskrift nemenda í gær, þar sem forsetinn var sæmdur heiðursdoktorsnafnbótinni, flutti hann stutt ávarp samkvæmt frétt á vefsíðu forsetans. Minnti hann þar á mikilvægi menntunar og sérfræðiþekkingar en ætíð yrði þó að hafa í huga takmörk þekkingar og nauðsyn þess að hlusta á ólík sjónarmið og nálganir á viðfangsefni.

Guðni sagði frá þessum heiðri á Facebook síðu sinni í dag og sagði frá því að Sæþór, yngsti sonur Guðna og Elizu, hafi verið með í för og verið föður sínum stoð og stytta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×