Aftur markalaust hjá Everton

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór fann ekki marknetið í dag
Gylfi Þór fann ekki marknetið í dag vísir/getty
Everton gerði sitt annað markalausa jafntefli í röð þegar liðið mætti West Bromwich Albion á útivelli í dag. Albion hefur ekki unnið síðustu átján deildarleiki sína.

Yannick Bolasie spilaði sinn fyrsta leik fyrir Everton í meira en ár, en hann kom til baka eftir krossbandsslit. Hann kveikti þó ekki í Everton-liðinu í dag, en leikurinn var einkar atkvæðalítill.

Gestirnir frá Liverpool áttu sitt fyrsta skot á markið í seinni hálfleik og þurftu að verjast áhlaupum West Brom án þess að ná að skapa sér neitt.

Everton er þó enn ósigrað síðan Sam Allardyce tók við liðinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira