Erlent

Öryggisráðið samþykkti hertar aðgerðir gegn Norður-Kóreu

Kjartan Kjartansson skrifar
Fulltrúar allra ríkjanna fimmtán sem eiga sæti í öryggisráðinu greiddu atkvæði með tillögu Bandaríkjamanna um að refsa Norður-Kóreu.
Fulltrúar allra ríkjanna fimmtán sem eiga sæti í öryggisráðinu greiddu atkvæði með tillögu Bandaríkjamanna um að refsa Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Ályktun Bandaríkjamanna um hertar refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Norður-Kóreu var samþykkt samhljóða í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Í henni er kveðið á um aðgerðir til að draga úr olíubirgðum landsins um allt að 90%.

Tilefni refsiaðgerðanna eru ítrekaðar eldflauga- og kjarnorkutilraunir stjórnvalda í Pjongjang. Í ályktuninni sem öryggisráðið samþykkti er kveðið á um að allir Norður-Kóreumenn sem vinna erlendis þurfi að snúa til síns heima innan tólf mánaða.

Fjöldi refsiaðgerða af hálfu Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna voru fyrir í gildi, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Kínverjar, helstu bandamenn Norður-Kóreumanna, greiddu atkvæði með ályktuninni. Þeir hafa neitunarvald í öryggisráðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×