Fótbolti

Galatasaray býður Eboue starf

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Eboue í leik með Galatasaray
Eboue í leik með Galatasaray vísir/getty
Tyrkneska liðið Galatasaray hefur boðið fyrrum leikmanni sínum, Emmanuel Eboue, starf hjá félaginu eftir að hann sagði frá erfiðleikum sínum í viðtali við Sunday Mirror á aðfangadag.

Eboue tapaði öllum eignum sínum í erfiðri skilnaðarbaráttu við fyrrum konu sína og hefur síðan þá átt í miklum erfiðleikum.

Sjá einnig: Eboue býr í myrkri af ótta við lögregluna

Eftir að hafa séð fréttirnar ákváðu forráðamenn tyrkneska félagsins, sem Eboue spilaði með á árunum 2011-16, að bjóða Eboue þjálfarastarf hjá yngri flokkum félagsins.



Félagið setti einnig af stað herferð til þess að hjálpa fyrrum leikmönnum sem hafa lent í vandræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×