Enski boltinn

Fellani er ekki viss um framtíð sína á Old Trafford

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Maraoune Fellaini hefur glímt við meiðsli að undanförnu.
Maraoune Fellaini hefur glímt við meiðsli að undanförnu. vísir/getty
Maraoune Fellaini segist ekki viss um það hvort hann muni verða áfram hjá Manchester United þegar þessu tímabili lýkur.

Hinn 30 ára gamli Fellaini verður samningslaus í sumar og má því ræða við önnur félög í janúar.

United bauð Belganum nýjan samning sem hljóðaði upp á 100 þúsund pund á viku. Hann hafnaði þeim samningi og veit ekki hvort hann muni samþykkja endurnýjað tilboð frá United.

„United bauð mér samning og ég held þeir muni gera mér nýtt tilboð,“ sagði Fellaini.

„Ég veit ekki enn hvort ég muni samþykkja það, sjáum til. Ég er búin að tala um þetta við Mourinho og hann virðir ákvarðanir leikmanna sinna.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×