Sterling tryggði City átjánda sigurinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Raheem Sterling skorar eina mark leiksins.
Raheem Sterling skorar eina mark leiksins. vísir/getty
Manchester City náði 15 stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 sigri á Newcastle United í kvöld.

Þetta var átjándi sigur City í röð en liðið hefur fengið 58 af 60 mögulegum stigum í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

City var miklu sterkari aðilinn í leiknum í kvöld og var með boltann 80% leiktímans.

Eina mark leiksins kom á 31. mínútu. Raheem Sterling skoraði þá með skoti í stöng og inn eftir sendingu Kevins De Bruyne.

Skömmu síðar fékk Rolando Aarons besta færi Newcastle en Nicolás Otamendi bjargaði á línu frá honum.

Newcastle er í 15. sæti deildarinnar með 18 stig, einu stigi frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira