Enski boltinn

Flanagan kærður fyrir líkamsárás

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jürgen Klopp og Jon Flanagan á betri stundu.
Jürgen Klopp og Jon Flanagan á betri stundu. Vísir/Getty
Varnarmaður Liverpool, Jon Flanagan, hefur verið kærður fyrir líkamsárás. BBC greinir frá.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Merseyside segir að hinn 24 ára Flanagan hafi verið ákærður eftir atvik sem átti sér stað í miðbæ Liverpool á aðfaranótt laugardags.

Hann var látinn laus úr haldi lögreglu, en þarf að mæta fyrir dómstóla 2. janúar næst komandi.

Talsmenn Liverpool vilja ekki tjá sig um málið fyrr en málsmeðferð yfirvalda er lokið.

Flanagan er fæddur í Liverpool og hefur verið á mála hjá félaginu allan sinn feril, en var á láni hjá Burnley á síðasta tímabili. Hann á að baki yfir 50 leiki fyrir Liverpool, en hefur aðeins spilað einn leik í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×