Innlent

Innlendur myndaannáll: Árið sem íslenska þjóðin sameinaðist í sorg

Samúel Karl Ólason skrifar
Það hefur ansi mikið verið um að vera á litla Íslandi á árinu sem er nú að klárast.
Það hefur ansi mikið verið um að vera á litla Íslandi á árinu sem er nú að klárast. Vísir
Það hefur ansi mikið verið um að vera á litla Íslandi á árinu sem er nú að klárast. Stjórnmálin hafa verið umfangsmikil, eins og undanfarin ár, og ríkisstjórnir komu og fóru. Mótmæli, þingslit, kosningar, stjórnarmyndunarviðræður og slíkt hefur verið til umræðu í öllum heitum pottum á árinu.

Það sama má segja um leitina að Birnu Brjánsdóttur sem heltók þjóðina í byrjun árs um sama leyti og ný ríkisstjórn tók við völdum.

Sjá einnig: Innlendar fréttir ársins 2017: Kynferðisbrot, knattspyrna og kosningar

Hér að neðan verður stiklað á stóru með myndum sem ljósmyndarar Fréttablaðsins og Vísis tóku á árinu sem nú er að líða. Hægt er að fletta myndasafninu til að skoða myndirnar.

Aðili fluttur í gæsluvarðhald vegna dauða Arnars Jónssonar Aspar í júní.Vísir/Eyþór
Katrín Jakobsdóttir les #Metoo sögur í Borgarleikhúsinu í desember.Vísir/Stefán
Eining úr Berlínarmúrnum var flutt til Íslands í ár og komið fyrir hjá Höfða í Reykjavík. Listamaðurinn Jakob Wagner málaði á vegginn og var hann afhjúpaður í tengslum við þjóðhátíðardag Þýskalands í október.Vísir/Ernir
86 starfsmönnum HB Granda á Akranesi var sagt upp á árinu og hætti fyrirtækið botnfiskvinnslu þar.Vísir/Anton
H&M opnaði með pomp og prakt í Smáralindinni í sumar.Vísir/Eyþór
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði Miðflokkinn á árinu og fékk flokkurinn sjö menn á þing.Vísir/Anton
Viljálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður, ræðir við Ólaf Ólafsson á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í maí.Vísir/Eyþór
Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, sleit þingi í september og boðaði til nýrra kosninga. Hér er hann að koma af fundi með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta.Vísir/Anton
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hress á kosningavöku flokksins í október.Vísir/Anton
Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, mætir á þingflokssfund Sjálfstæðisflokksins í september.Vísir/Vilhelm
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti sýrlenskum flóttamönnum í byrjun árs.Vísir/Eyþór
Urður Bergsdóttir, Áróra Bergsdóttir, Eva Vala Guðjónsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson. Bergur segir að sú staðreynd að ríkisstjórnin hafi fallið vegna mála sem tengjast uppreist æru kynferðisbrotamanna sýni hversu alvarlegt málið hafi verið.Vísir/Stefán
Þjóðaröryggisráð Íslands kom saman í fyrsta sinn á árinu.Vísir/Eyþór
Frá réttarhöldum yfir Thomas Moller Olsen, skipverja Polar Nanoq, sem sakfelldur var fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur.Vísir/Anton
Björt Framtíð, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu ríkisstjórn í byrjun árs.Vísir/Ernir
Mikið hefur gengið á við bensíndælu Costco á árinu.Vísir/Eyþór
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benedikttson þegar nýir ráðherrar fengu afhenta lykla að ráðuneytum sínum í byrjun árs.Vísir/Vilhelm
Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttur, ræðir við fjölmiðla.Vísiri/Anton
Formenn flestra flokka í kosningum í október. Jón Þór Ólafsson og Lilja Alfreðsdóttir voru þarna í forsvari fyrir sína flokka; Pírata og Framsóknarflokkinn.Vísir/Ernir
Lilja Alfreðsdóttir og Inga Sæland bregða á leik í kosningabaráttunni.Vísir/Ernir
Frá útför Birnu Brjánsdóttur í Hallgrímskirkju þann 3. febrúar.Vísir/Anton
Ferðamenn í sjónum í Reynisfjöru. Í janúar lést þýsk kona þar skammt frá, í Kirkjufjöru. Margir aðrir ferðamenn voru hætt komnir á þessum slóðum á árinu.Vísir/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir á Bessastöðum.Vísir/Eyþór
Eldri borgarar og örykjar funduðu með þingmönnum. Hér má sjá Berg Þorra Benjamínsson, gjaldkera Öryrkjabandalags Íslands.Vísir/Stefán
Tryggvi Hansen, sem býr í skóglendi í útjaðri borgarinnar, þáði fjóra pelsa frá dýraverndunarsamtökunum PETA. Þrátt fyrir að búið væri að merkja þá með litum. Stóra pelsamálið var umfangsmikið í byrjun árs.Vísir/Vilhelm
Fjöldi björgunarsveitarmanna tóku þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur eftir að hún hvarf í byrjun árs.Vísir/Eyþór
Margir skátar komust í hann krappan í sumar þegar alvarleg veikindi komu upp í sumarbúðum á Úlfljótsvatni.Vísir/Eyþór
Gjaldeyrishöft voru afnumin í mars.Vísir/Eyþór
Frá mótmælum á Austurvelli eftir að Robert Downey fékk uppreist æru.Vísir/Eyþór
Leitað að Birnu Brjánsdóttur í sjónum í Hafnarfirði.Vísir/Eyþór
Frá minningarathöfn við Reykjavíkurtjörn eftir að Klevis Sula var stunginn til bana á Austurvelli í desember.Vísir/Eyþór
Örtröð í Leifsstöð vegna verkfalls flugvirkja Icelandair í desember.Vísir/Eyþór
Flutningabíll með 114 sláturgrísi valt í Svínahrauni í október.Vísir/Stefán
Aflífa þurfti einhverja grísi á staðnum eftir að bíllinn valt.Vísir/Stefán
Sveinn Gestur Tryggvason var í desember dæmdur til sex ára fangelsisvistar fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða Arnars Jónssonar Aspar. Líkamsárásin átti sér stað á Æsustöðum í Mosfellsdal í byrjun júní.Vísir/Eyþór
Frá stjórnarmyndunarviðræðum Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.Vísir/Vilhelm
Fjöldi fólks gekk um Hafnarfjörð að leita að Birnu Brjánsdóttur. Hér eru þau Leó, Unnur Birna, Óliver og Rakel að leita í iðnaðarhverfinu í Hafnarfirði.Vísir/Eyþór
Skrifað undir stjórnarsáttmálann í Listasafni Íslands í lok nóvember.Vísir/Eyþór
Gert var hlé á stjórnarmyndunarviðræðum á heimili Sigurðar Inga og Elsu á Syðra Langholti til að gæða sér á gómsætri flatböku úr golfskálabistroinu Seli.Vísir/Ernir
Rokið getur verið mikið á Íslandi eins og sést hér á mynd sem var tekin fyrir utan Hörpu í lok apríl.Vísir/Ernir
Tomas Müller pg tveir aðrir voru handteknir þegar togaranum Polar Nanoq var siglt til hafnar í Hafnarfirði undir stjórn sérsveitar ríkislögreglustjóra.Vísir/Anton
Frá minningarathöfn vegna dauða Birnu Brjánsdóttur.Vísir/Ernir
Fjöldi Íslendinga gengu um miðbæinn til minningar Birnu.Vísir/Ernir
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, þingmenn Samfylkingarinnar, á göngu með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna.Vísir/Vilhelm
Fjölmenn mótmæli fóru fram á Austurvelli í september vegna brottvísunar stúlknanna Haniye og Mary og fjölskyldna þeirra.Vísir/Vilhelm
Umtalsverðar tafir mynduðust á Leifsstöð vegna verkfalls flugvirkja Icelandair.Vísir/Vilhelm
Þegar árið byrjaði voru sjómenn í verkfalli. Þeir samþykktu svo nýjan samning í febrúar.Vísir/Vilhelm
Rannsóknarskýrsla um sölu Búnaðarbankans kynnt. Hér eru þau Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar.Vísir/Vilhelm
Guðni Th. Jóhannesson, forseti, og eiginkona hans Eliza heimsóttu Barnaspítala Hringsins á 60 ára afmæli hans.Vísir/Eyþór
Íslendingar fjölmenntu til Hollands til að styðja íslenska kvennalandsliðið á Evrópumótinu í fótbolta í júlí.Vísir/Vilhelm
Síðasta haftið var sprengt í Vaðlaheiðargöngum á árinu.Vísir/Auðunn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×