Innlent

Styrkir bókagjöf til Svía um tíu milljónir

Atli Ísleifsson skrifar
Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Fréttablaðið/Vilhelm
Ríkisstjórnin hefur samþykkt, að tillögu forsætisráðherra, að styrkja bókagjöf til sænsku þjóðarinnar með 10 milljóna króna framlagi af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar. Þetta er gert í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands til Svíþjóðar í næsta mánuði.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að forsetinn muni í heimsókn sinni færa sænsku þjóðinni að gjöf 400 til 500 eintök af heildarútgáfu Íslendingasagna og þátta á sænsku.

„Sambærilegar gjafir voru afhentar í tengslum við opinberar heimsóknir forseta Íslands til Danmerkur og Noregs fyrr á þessu ári

Bókagjöfin verður afhent með viðhöfn í Uppsalakastala hinn 19. janúar nk. í viðurvist sænsku konungshjónanna og íslensku forsetahjónanna,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×