Enski boltinn

Sjáðu stoðsendingu Jóhanns Berg og fimm mörk Tottenham

Jóhann Berg Guðmundsson gaf sína fimmtu stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni í gær er Burnley vann 1-0 sigur á Watford í gær.

Með sigrinum komst Burnley í 28 stig og er jafnt Tottenham og Arsenal í 5.-7. sæti deildarinnar en síðastnefnda liðið á leik til góða gegn Southampton á útivelli í dag.

Tottenham vann í gær sannfærandi sigur á Stoke, 5-1, en Chelsea varð hins vegar af mikilvægum stigum í toppbaráttunni er liðið tapaði óvænt fyrir West Ham, 1-0.

Þá vann Swansea afar mikilvægan sigur á West Brom í botnbaráttunni en allt það helsta úr leikjum gærdagsins má sjá hér fyrir neðan.

Burnley - Watford 1-0
Huddersfield - Brighton 2-0
Newcastle - Leicester 2-3
Crystal Palace - Bournemouth 2-2
Swansea - West Brom 1-0
Tottenham - Stoke 5-1
West Ham - Chelsea 1-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×