Innlent

Stofnvísitala þorsks aldrei mælst hærri

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þessar mælingar nú renna stoðum undir það að staða þorskstofnsins sé góð en mælingin sé þó aðeins af þremur meginþáttum sem Hafró notar til þess að ákveða stofnmörk hvers árs.
Þessar mælingar nú renna stoðum undir það að staða þorskstofnsins sé góð en mælingin sé þó aðeins af þremur meginþáttum sem Hafró notar til þess að ákveða stofnmörk hvers árs. vísir/stefán
Stofnvísitala þorsks hefur aldrei mælst hærri í stofnmælingum botnfiska að haustlagi en nú en mælingarnar hófust árið 1996. Þá er stofnvísitala gullkarfa einnig sú hæsta síðan mælingar hófust en vísitala ýsu er nú nálægt meðaltali tímabilsins.

Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarlífríkissviðs Hafrannsóknastofnunar, segir að niðurstöðurnar varðandi þorskinn séu mjög jákvæðar. Þessar mælingar nú renni stoðum undir það að staða stofnsins sé góð en mælingin sé þó aðeins af þremur meginþáttum sem Hafró notar til þess að ákveða stofnmörk hvers árs. Hinir þættirnir tveir eru stofnmæling að vori og svo gögn frá fiskiskipum.

„Það sem er jákvætt við þetta er að þetta hækkar í ár en þetta lækkaði aðeins í fyrra. Fyrstu vísbendingar um árganginn 2017 er að hann sé svona við meðallag sem er mjög jákvætt,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi.

Annað sem kom út úr mælingum Hafró í ár er að vísitala veiðistofns djúpkarfa hefur hækkað undanfarin ár eftir að hafa náð sögulegu lágmarki en nýliðun er þó áfram mjög léleg.

„Vísitala veiðistofns grálúðu hefur hækkað jafnt og þétt frá árinu 2006 þegar hún var í lágmarki. Stofnvísitölur margra tegunda, eins og ufsa, langlúru, skarkola, þykkvalúru, keilu, löngu, gulllax og litla karfa mældust háar og í mörgum tilfellum þær hæstu frá árinu 1996. Stofnar hlýra, tindaskötu og skrápflúru eru hinsvegar í sögulegu lágmarki,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar.

Stofnmæling botnfiska að haustlagi, eða svokallað haustrall, fór fram í 21. sinn dagana 4. til 9. nóvember síðastliðinn. Svæðið sem var til rannsóknar var umhverfis Ísland allt niður á 1500 metra dýpi og var togað með botnvörpu á 375 stöðvum. Togarainn Ljósafell SU og rannsóknaskipið Árni Friðriksson RE voru notuð til rannsóknarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×