Innlent

Móðir Ellu Dísar hyggst kæra niðurstöðu héraðssaksóknara

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ella Dís ásamt móður sinni, Rögnu Erlendsdóttur.
Ella Dís ásamt móður sinni, Rögnu Erlendsdóttur. visir/arnþór
Héraðssaksóknari hefur ákveðið að fella niður sakamál gegn hjúkrunarfyrirtækinu Sinnum og starfsmanni þess vegna andláts Ellu Dísar Laurens þegar hún var í umsjón fyrirtækssins. Héraðdómur Reykjavíkur telur að rekja megi andlát Ellu Dísar til stórfellds gáleysis Sinnum. Móðir Ellu Dísar hyggst kæra niðurstöðuna til ríkissaksóknara. RÚV greinir frá.

Ella Dís var haldin ólæknandi taugasjúkdómi og studdist hún við öndunarvél í gegnum túbu í barka hennar. Naut hún aðstoðar þroskaþjálfara en þann 18. mars 2014 forfallaðist þroskaþjálfinn og sendi Sinnum þá ófaglærðan starfsmann til að fylgja henni.

Þegar starfsmaðurinn var að færa Ellu Dís færðist öndunartúban úr stað sem olli því að súrefnismettun féll. Varð hún fyrir miklum heilaskaða sem dró hana til dauða.

Sinnum var í byrjun október dæmt til að greiða Rögnu Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar, þrjár milljónir í miskabætur í málinu en sýnt var fram á að stjórnendur Sinnum hefðu sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að láta ófaglærðan starfsmann sinn Ellu Dís við aðstæður sem hún réði ekki við.

„Það sem drífur mig áfram er bara það að einhver þurfi ekki að ganga í gegnum þennan ótrúlega sársauka. Að vita ekki hvað er að barninu mínu og þurfa að fást við fordóma og leiðindi frá fagaðilum þegar maður er bara hræddur og að reyna að bjarga barninu sínu. Og ég er svo að vona að með því að gera þetta að ég geti komið á einhverjum kerfisbreytingum, að viðkvæmir einstaklingar séu í öruggum höndum, að öryggisjúklinga sé tryggt, að það sé farið sé eftir lögum,“ segir Ragna í samtali við RÚV. 

„Með því að gera þetta þá bæði heiðra ég minningu hennar og vonandi bjarga einu barni, einni fjölskyldu frá því að upplifa það sem hún þurfti að upplifa og við öll.“


Tengdar fréttir

Lögregla rannsakar andlát Ellu Dísar

Starfsmaður hjá hinu einkareikna heimahjúkrunarfyrirtæki Sinnum hefur stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á andláti Ellu Dísar Laurens.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×