Innlent

Reykjavík valin ævintýraáfangastaður Evrópu

Samúel Karl Ólason skrifar
Hópur þýskra ferðamanna á göngu um Reykjavík.
Hópur þýskra ferðamanna á göngu um Reykjavík. Vísir/Stefán
Reykjavík hefur verið valin Ævintýraáfangastaður Evrópu af tímaritinu Luxury Travel Guide. Þetta er annað árið í röð sem borgin er valin af starfsmönnum tímaritsins en í umsögn um Reykjavík segir að hún sé menningarborg, í stórbrotnu landslagi með norðurljósadýrð og fjölbreytta afþreyingu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Visit Reykjavík.

Dómnefnd Luxury Travel Guide, sem skipuð er fagfólki á ýmsum sviðum ferðaþjónustunnar, segir einnig að fjölskylduferð til Reykjavíkur sé uppskrift að spennandi ævintýrum og einstökum minningum sem enginn eigi að láta fram hjá sér fara.

„Í viðurkenningunni fyrir árið 2018 felst m.a. forsíðugrein í tímariti LTG um Reykjavík og ferðaþjónustu á hér á landi. Tímaritinu verður dreift til yfir 500 þúsund áskrifenda, á tíu þúsund lúxushótel, á setustofur flugvalla, skemmtiferðaskip og ferðaskrifstofur um allan heim. Þá verður fulltrúum Reykjavíkurborgar boðið að koma og taka á móti viðurkenningunni á sérstakri verðlaunaathöfn tímaritsins þar sem Reykjavík á jafnframt möguleika á að vera valin Ævintýraáfangastaður alls heimsins árið 2018,“ segir í tilkynningunni.

Áshildur Bragadóttir, forstöðukona Höfuðborgarstofu, segir það mikinn heiður fyrir Reykjavíkurborg að skara fram úr með þessum hætti á alþjóðavísu.

„Fagtímaritið Luxury Travel Guide veitir nú borginni viðurkenningu annað árið í röð og ljóst að sú framþróun sem hefur orðið síðustu ár á áfangastaðnum Reykjavík vekur heimsathygli. Þetta er jafnframt viðurkenning á þeim árangri sem við höfum náð í kynningu og markaðssetningu á borginni þar sem áherslan hefur verið á að kynna þá fjölbreyttu afþreyingu og menningu sem er til staðar. Þetta er einnig mikil viðurkenning fyrir ferðaþjónustuna hér á landi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×