Lífið

Kraumslistinn 2017 tilkynntur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Verðlaunhafar 2016: Alvia Islandia, Amiina, GKR, Gyða Valtýsdóttir, Kælan mikla, Páll Ívan frá Eiðum
Verðlaunhafar 2016: Alvia Islandia, Amiina, GKR, Gyða Valtýsdóttir, Kælan mikla, Páll Ívan frá Eiðum
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs, verða afhent í tíunda sinn í ár. Venju samkvæmt þá birtir Kraumur úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann, í byrjun desember yfir þær plötur sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Kraumsverðlaunin sjálf verða svo afhent síðar í mánuðinum.

Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðummetnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.

Allar íslenskar plötur sem komið hafa út á árinu eiga möguleika á að komast á Kraumslistann og hreppa þar með Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á Spotify og netinu. Útgáfustarfsemi á Spotify og netinu hefur færst mikið í vöxt síðustu ár og er stór hluti þeirra verka sem íslenskir listamenn og hljómsveitir hafa gefið út það sem af eru ári aðeins fáanleg með þeim hætti.

Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að Kraumslistinn og verðlaunin sjálf veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu. Alls voru 374útgafur til hlustunar og umfjöllunar hjá dómnefnd og því ljóst að mikið er að gerast í útgáfustarsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. 

DÓMNEFND

Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum, á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (IMX) og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri. Dómnefndin hefur hlustað á og tekið til umfjöllunar 374 hljómplötur og útgáfur íslenskra listamanna og hljómsveita sem komu út á árinu við val sitt á Kraumslistanum 2017. Nefndin vinnur nú að því að velja sex hljómplötur sem hljóta munu Kraumsverðlaunin í ár.

UM KRAUMSVERÐLAUNIN

Kraumsverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2008 og hafa alls 45 íslenskar hljómsveitir og listamenn hlotið þau fyrir verk sín. Má þar nefna; Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, Misþyrming, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Sin Fang, Ísafold kammersveit og Ólöf Arnalds. Kraumsverðlaunin ár svo afhent í 10.-sinn síðar í desember.

Í fyrra hlutu Alvia Islandia (Bubblegum Bitch), Amiina (Fantomas), GKR (GKR), Gyða Valtýsdóttir (Epicycle), Kælan Mikla (Kælan Mikla) og Páll Ívan (This is My Shit) verðlaunin.

Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. 

KRAUMUR & AURORA VELGERÐARSJÓÐUR

Aðstandandi Kraumslistans er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Hér að neðan má sjá listann í ár í heild sinni:

Alvia Islandia - Elegant Hoe 

Baldvin Snær Hlynsson - Renewal

Bára Gísladóttir - Mass for Some

Biogen - Halogen Continues

Bjarki - THIS 5321

Cyber - Horror

Dodda Maggý - C series

Elli Grill & Dr. Phil - Þykk Fitan Vol. 5

Eva808 - Prrr 

GlerAkur  The Mountains Are Beautiful Now 

Godchilla - Hypnopolis

Fersteinn - Lárviður

Hafdís Bjarnadóttir - Já

Hatari - Neysluvara EP

JFDR - Brazil

Joey Christ - Joey

kef LAVÍK - Ágæt ein: Lög um að ríða og / eða nota fíkniefni

Legend - Midnight Champion

Nordic Affect - Raindamage

Pink Street Boys - Smells like boys

SiGRÚN - Smitari

Sólveig Matthildur - Unexplained miseries & the acceptance of sorrow

Úlfur - Arborescence

Volruptus - Hessdalen

World Narcosis - Lyruljóra






Fleiri fréttir

Sjá meira


×