Jólabrauðterta með hamborgarhrygg Elín Albertsdóttir skrifar 4. desember 2017 10:00 Glæsileg jólabrauðterta sem Guðrún útbjó úr jólaafgöngum. MYND/EYÞÓR
Guðrún rekur smurbrauðsstofuna Sylvíu á Laugavegi en hún tók við rekstrinum af tengdamóður sinni. Stofan er veisluþjónusta og Guðrún segir að mjög mikið sé að gera á aðventunni. „Við erum með fjölda fastra viðskiptavina á aðventu og sérstaklega á Þorláksmessu. Það er hefð í mörgum fyrirtækjum að bjóða upp á smurt brauð eða tapassnittur á þeim degi,“ segir hún. Guðrún Pétursdóttir matreiðslumeistari. MYND/EYÞÓR Guðrún samþykkti að útbúa jólabrauðtertu fyrir lesendur og hún segist strax hafa hugsað að hafa hana einfalda og með einhverju sem fólk ætti í ísskápnum. „Það eru flestir með afganga af hamborgarhrygg sem sniðugt er að nýta í brauðtertu. Það gæti verið kjörin leið til að koma í veg fyrir matarsóun að setja afganga í svona brauðtertu. Ég bjó til tertuna í fyrsta skipti um daginn og gaf nokkrum félögum mínum í kokkastétt að smakka. Þeir voru mjög hrifnir svo ég fór alla leið í þessu,“ segir Guðrún sem útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 2013 og hélt þá áfram í meistaraskólanum. Hún lærði í veitingahúsi Perlunnar en fyrir tveimur árum tók hún við smurbrauðsstofunni. Tertan er fallega skreytt en Guðrún segist vera mikið jólabarn sjálf. „Ég er eins og aðrir með hamborgarhrygg á aðfangadag. Í eftirrétt geri ég ís eða súkkulaðimús eftir því sem börnin vilja. Mér finnst gaman að skreyta í kringum mig og lýsa upp skammdegið. Ég byrja snemma að skreyta vegna þess að það er svo mikið að gera þegar líður að jólum í vinnunni,“ segir hún og hér kemur uppskriftin að þessari glæsilegu tertu. Jólabrauðterta Salat 250 g hamborgarhryggur 1 grænt epli 10 vínber 80 g niðursoðin ferskja 50 g agúrka 250 g majónes, má nota sýrðan rjóma á móti 3 sneiðar brauðtertubrauð Kryddað með salti, pipar og papriku eftir smekk Allt hráefnið er saxað smátt, sett í skál og blandað saman. Best er að setja salatið í tertuna deginum áður, þá verður hún mýkri. Skreyting Smyrjið tertuna með þunnu lagi af majónesi. Skerið agúrku í sneiðar og klæðið tertuna. Raðið skrauti ofan á og setjið steinselju í kanta. Í skraut nota ég yfirleitt það sem fer í salatið eða bara það sem er til.
Jól Jólamatur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meistarakokkur á skjánum Jól Laufabrauð Jól Ódýrar og einfaldar gjafir frá hjartanu Jólin Jóladagatal Vísis: Þegar upp úr sauð hjá Árna Johnsen og Rottweilerhundunum Jólin Prúðbúin jólakrútt Jólin Ekta gamaldags jól Jólin Ýmsar grýlusögur og leikrit Jól Teymi styrkir Neistann Jól Margrét Eir er ekkert stressuð fyrir jólin Jól Klassískir og einfaldir pakkar Jólin