Lífið

Fortíðardraugar ásækja Alec Baldwin sem Donald Trump í nýju atriði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Alec Baldwin hefur farið á kostum í gervi Donald Trump.
Alec Baldwin hefur farið á kostum í gervi Donald Trump. Vísir/Getty
Alec Baldwin mætti enn á ný í gervi Donald Trump í Saturday Night Live þættinum í Bandaríkjunum um helgina. Í atriðinu ásóttu fortíðardraugar forseta Bandaríkjanna.

Atriðið hefst á því að Baldwin, í gervi Trump, virðist vera í fýlu yfir því að hann hafi ekki miklu að fagna yfir hátíðirnar þetta árið. Í anda Jólaævintýris Charles Dickens mæta einstaklingar úr nánustu fortíð Trump. Þar á meðal fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafinn Michael Flynn og Billy Bush sem tók frægt viðtal við Trump árið 2005.

Hefur Trump alfarið neitað því að hafa látið ýmis óviðurkvæmileg orð falla í því viðtali. Að lokum fær hann svo afar óvæntan gest en atriðið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Alec Baldwin snýr aftur sem Trump í SNL

Leikarinn Alec Baldwin hefur snúið aftur í hlutverki Donald Trump í þáttunum Saturday Night Live, aðdáendum þáttanna til mikillar gleði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×