Innlent

Stakk puttunum í eyrun á yngri dótturinni svo hún gæti sofnað

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Setið var um heimili Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra, í nokkur skipti árið 2009 vegna brottvísunar hælisleitenda.
Setið var um heimili Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra, í nokkur skipti árið 2009 vegna brottvísunar hælisleitenda. Vísir/Ernir
Ragna Árnadóttir fyrrverandi dómsálaráðherra segist hafa orðið óttaslegin og upplifað sig niðurlægða við ítrekuð mótmæli fyrir utan heimili hennar árið 2009. Viðtal við Rögnu var sýnt í Kastljósi Ríkisútvarpsins í kvöld.

Mótmæli fyrir utan heimili stjórnmálamanna voru algeng á árunum eftir hrun. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður, sagði af sér þingmennsku vorið 2010. Aðdragandi afsagnarinnar var markeraður af ítrekuðum mótmælum fyrir utan heimili hennar vegna styrkja sem hún hafði þegið, haft var í hótunum við hana og hvatt til þess að henni yrði nauðgað.

Viðtal við Steinunni Valdísi um ofbeldið í Silfrinu í gær hefur vakið mikla athygli.

Hafði minnstar áhyggjur af sjálfri sér

Setið var um heimili Rögnu í nokkur skipti árið 2009 vegna brottvísunar hælisleitenda. Ragna sagðist hafa haft áhyggjur af fjölskyldu sinni og nágrönnum á meðan mótmælunum stóð – en ekki sjálfri sér.

„En það er svo skrýtið í þessu að ég hafði minnstar áhyggjur af mér. Ég hafði bara svo miklar áhyggjur af fjölskyldu minni, dætur mínar voru heima og maðurinn minn. En líka, það er svo skrítið, hvernig maður fer einhvern veginn að upplifa þetta. Ég hafði áhyggjur af nágrönnunum líka,” sagði Ragna sem upplifði sig niðurlægða.

„Ég var óttaslegin en mér fannst þetta líka hræðileg niðurlæging. Þannig að það líka berst um í mér núna, að tala um þetta aftur og tala við þig um þetta, mér finnst þetta hafa verið niðurlægjandi lífsreynsla.“

„Maður er bara varnarlaus“

Lögregla stóð vörð um hús Rögnu þegar mótmælin stóðu sem hæst. Það þótti Rögnu ótrúlega gott, að því er fram kom í viðtalinu í kvöld. Þá átti hún erfitt með að lýsa líðan sinni þegar glumdi í mótmælendum fyrir utan hjá henni.

„Það var einu sinni brotist inn hjá mér. Mér leið bara nákvæmlega eins. Mér leið bara eins og það væri verið að ryðjast inn á mig og mitt einkalíf og það eru ótrúlega skrýtnar tilfinningar sem vakna við það, maður er bara varnarlaus,“ sagði Ragna.

Sjá einnig: Steinunn Valdís: „Það er bara augljóst að þetta hefur hreyft við fólki, hreyft við konum“



Ragna átti ung börn þegar mótmælin voru haldin. Hún segir dætur sínar tvær hafa orðið varar við mótmælin, sérstaklega sú yngri.

„Já, já. Önnur var á táningsaldri og hin yngri, en vissulega urðu þær varar við þetta. Eldri stelpan, hún reyndar tók sér það hlutverk að passa upp á allt, hún sýndi mikinn styrk og lét þetta ekki á sig fá svo vitað sé,“ sagði Ragna.

„En yngri varð nú vör við þetta, hún var yngri og það var erfiðara að útskýra þetta fyrir henni. Já, ég man eftir því þarna einu sinni að ég stakk puttunum í eyrun á henni svo hún gæti sofnað, því þessi köll voru náttúrulega með miklum ólíkindum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×