Innlent

Ofhleðsla báta hvorki afrek né hetjudáð að mati rannsóknarnefndar

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndir sem rannsóknarnefnd samgönguslysa birtir af Hjördísi HU 16 í skýrslunni um atvikið.
Myndir sem rannsóknarnefnd samgönguslysa birtir af Hjördísi HU 16 í skýrslunni um atvikið. Rannsóknarnefnd samgönguslysa
Ofhleðsla báta er mjög alvarlegt mál og virðst of algengt. Þetta er niðurstaðaa rannsóknarnefndar samgönguslysa sem hvetur fjölmiðla og aðra til þess að hætta að upphefja ofhleðslu báta sem hetjudáð eða afrek.

Þetta segir í skýrslu nefndarinnar vegna atviks sem átti sér stað 15. febrúar þegar reynt var að sigla bátnum Hjördísi HU 16 ofhlöðnum til hafnar, en báturinn var á línuveiðum í Breiðafirði.

Hjördísi fylgt til hafnarRannsóknarnefnd samgönguslysa
Tilkynning barst frá skipstjóra Hjördísar til Vaktstöðvar siglinga þess efnis að báturinn væri kominn með bakborðshalla og sjór væri farinn að koma inn á þilfarið.

Var björgunarskipið Björg frá Rifi kallað út ásamt björgunarsveit.

Hjördís hallast og áhöfn tekin frá borðiRannsóknarnefnd samgönguslysa
Skipverjar ákváðu að létta bátinn með því að kasta fiski fyrir borð og náðu þannig að rétta bátinn.

Létu þeir Vaktstöðina vita að ekki væri þörf á frekari aðstoð þar sem fleiri bátar væru á svæðinu.

Eftir nokkra siglingu til hafnar kom björgunarskipið Björg á staðinn og sigldi með Hjördísi um tíma en skömmu síðar fór báturinn aftur að halla í bakborða og þyngjast að aftan.

Björgunarsveit léttir bátinnRannsóknarnefnd samgöngslysa
Var ákveðið að taka áhöfn Hjördísar frá borði og reyna að létta bátinn þannig. Björgunarskipið tók Hjördísi síðan í tog til hafnar á Rifi.

Samkvæmt tölum frá Fiskistofu reyndust 8.704 kíló af afla vera um borð í bátnum. Rannsóknarnefndin segir umfram þunga um borð hafa verið um 4.550 kíló.

Nefndin telur að þó ekki hafi farið illa í þessu tilviki hafi verið fullt tilefni til að rannsaka þennan atburð. Háttsemin hafi stofnað í hættu öryggi skips og áhafnar.

Afli og veiðarfæri á þilfari Hjördísar. Fiskur í körum, poka og laus á þilfari.Rannsóknarnefnd samgönguslysa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×