Innlent

Horfði upp á móður sína verða fyrir heimilisofbeldi og taka of stóran skammt

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Úrsúla hefur gengið í gegnum margt.
Úrsúla hefur gengið í gegnum margt.
Úrsúla Ósk Lindudóttir var tekin frá móður sinni þegar hún var 8 ára gömul. Móðir hennar var ekki talin hæf vegna neyslu. Hún segist hafa þurft að horfa upp á móður sína verða fyrir alvarlegu heimilisofbeldi af hendi stjúpföður síns, annast hana þegar hún var undir áhrifum fíkniefna og man skýrt eftir nokkrum atvikum þar sem sjúkrabíll kom að heimili þeirra að vitja móður hennar sem hafði tekið of stóran skammt.

Úrsúla segir frá þessu í skoðanapistli sem birtist á Vísi í dag. Hún segist vilja hjálpa fólki sem sé í sömu stöðu og hún var sem barn. Úrsúla kom fram ásamt móður sinni í þáttunum Fósturbörn á Stöð 2 fyrr í vetur.

„Ég, eins og margir aðrir einstaklingar, var tekin frá móður minni þegar ég var 8 ára gömul vegna þess að hún var ekki talin hæf til að annast mig sem í mínu tilfelli er 100% satt. Þegar hún var aðeins 12 ára gömul leiddist hún út af beinu brautinni og fór að nota efni sem að getur gjörbreytt okkur, fíkniefni og áfengi,“ skrifar Úrsúla.

Faðir hennar, sem einnig var í neyslu, lést 8. mars 2015.

„Faðir litlu systir minnar, sem er 5 ára í dag, lést líka af völdum þess 10. nóvember 2015. Eðlilega fylgja miklar tilfinningar og sorg og það er ekkert nema mannlegt að finna fyrir óréttlæti og reiði. Þetta getur verið svo mikill tilfinninga rússíbani að maður ræður ekkert við sjálfan sig.“

Vildi breyta hugarfari sínu

Úrsúla segist vilja vekja athygli á því að fólk ráði ekki framtíð sinni þegar það fæðist inn í þennan heim. 

„Ég var óheppin að þurfa upplifa þetta allt og að þurfa fara í gegnum það. Ég ákvað að breyta mínu hugarfari og horfa á þetta öðruvísi augum,“ segir hún.

„Það eru margir sem finnast óréttlátt þegar maður er tekin af foreldri sínu inn á annað ókunnugt heimili. Það er ekkert eðlilegt við það að barn/unglingur þurfi að horfa upp á foreldrið sitt undir áhrifum áfengis/vímuefna sem tekur rangar ákvarðanir og getur ekki einu sinni séð um barnið sitt á viðeigandi hátt. Mamma mín var auðvitað góð móðir og reyndi allt í sínu veldi að annast mig og kenna mér allt sem ég þurfti að læra. En það var ekki alltaf sem hún var í ástandi til þess.“

Móðir Úrsúlu var 17 ára þegar hún fæddist. Fyrstu fimm mánuði meðgöngunnar notaði hún amfetamín.

„Þegar hún fékk mig í fangið þá fann hún ekki fyrir neinni móður ást. Hún var bara krakki sem hélt að hún myndi hætta neyslunni með því að eignast barn en því miður var það ekki svo auðvelt.“

Íbúar í bænum meðvitaðir um fíkn Lindu

Þær mæðgur bjuggu á Eskifirði og segir Úrsúla að allir í plássinu hafi verið meðvitaðir um vandamálin á heimilinu.

„Sumar vinkonur mínar fengu það skilyrði að ef þær ætla að leika við mig þá máttu þær ekki koma með mér heim eftir skóla en ég var alltaf velkomin heim til þeirra, eðlilega! Sumar máttu bara fara með mér ákveðið langt en alls ekki lengra en það. Mér fannst það alltaf voða skrítið og reyndi oft að reyna fá þær með mér alveg eins og þær gerðu með hinum krökkunum því ég auðvitað skildi ekkert í þessu, ég var bara krakki og gerði mér enga grein fyrir aðstæðunum sem ég var í.“

Úrsúla tekur nokkur sértæk dæmi sem fólk verður gjarnan forvitið um þegar tal berst að æsku hennar. Hið fyrsta er heimilisofbeldi.

„Ég horfði upp á stjúppabbba minn berja mömmu mína. Heilinn á mér er búin að henda út öllum minningum af henni annaðhvort það marin að hún var svört í framan, nefbrotin og annarskonar áverkar. Ég man eina nóttina þegar ég vakna ein upp í rúmi, það voru einhver læti uppi, einhver var að banka. Ég labba upp stigann heima og sé blá blikkandi ljós hinu megin við glerið á útidyrahurðinni, en einhvern veginn var alls staðar blikkandi ljós í kringum mig,“ skrifar Úrsúla.

„Ég lít inn í stofu og þar situr stjúppabbi minn (hann var stjúppabbi minn þá og ég leit mjög mikið upp til hans). Löggan biður mig um að koma og opna fyrir þeim og á sama tíma segir stjúpi mér að opna ekki. Það gekk þannig á í smá tíma þar til hann ákveður að standa upp og opna sjálfur. Löggan stekkur á hann og fer með hann inn í stofu, mamma hleypur inn, tekur mig upp og fer með mig niður. Hún var öll rennandi blaut og köld eftir að hafa flúið út og verið þar í dágóðan tíma þar til hún labbar upp eftir til afa og ömmu og þau hringja í lögguna. Hún pakkar niður í töskur í flýti og við förum með lögreglubílnum til afa og ömmu.“

Hér má sjá Lindu Rut með Úrsúlu þegar hún var ungabarn.
Gerði allt til að móður sinni myndi líða betur

Úrsúla segir að stjúpfaðir hennar hafi aldrei lagt hönd á hana sjálfa. Hann hafi verið góður við hana, ef frá er talið að hún hafi séð hann leggja hönd á móður hennar. Hún segir að það sé erfitt að vera þakklátur fyrir aðra hluti, en það sé hún.

„Daginn eftir þá vorum við öll frekar lömuð, þetta var mikið sjokk en jú jú þetta var venjan. Ég vildi fara út að hjóla en hjólið mitt var heima þar sem hann var. Ég fer heim, banka upp á, hann kemur til dyra og ég segi ákveðin „Hæ, ég er að koma að sækja hjólið mitt.“ Hann lætur mig hafa það og ég þakka fyrir og fer að hjóla. Þannig já ég hef alltaf verið mjög ákveðin og er það enn.“

Annað dæmið sem Úrsúla tekur er um of stóran skammt. Hún segist nokkrum sinnum hafa séð sjúkrabíl koma að heimilinu til að hjálpa móður hennar þegar hún hafi verið nær dauða en lífi. Þriðja dæmið er um annarlegt ástand móður hennar.

„Ég man ein jólin þegar mamma var svo dópuð að ég lá með henni upp í rúmi, strauk á henni hárið til að láta henni líða betur því hún var svo „lasin“. Ég gerði allt til þess að henni myndi líða betur. Hún stal fyrir mig, keyrði með mig í engu ástandi til að keyra og margt fleira.“

Fór suður án þess að láta vita

Fjórða dæmið kallar Úrsúla svik.

„Hún sagði mér að fara upp eftir til ömmu og afa. Þegar þau fóru að athuga með hana þá var hún farin með flugi suður án þess að láta neinn vita,“ skrifar hún.

„Þetta er aldeilis mikið til að taka inn og maður á mjög erfitt með að fyrirgefa svona hluti, sumir vilja meina að þetta sé ófyrirgefanlegt. Ég fyrirgef mömmu, ég fyrirgef allt því ég veit að hún/þau gerðu þetta ekki til þess að særa mig. Þetta er sjúkdómur og það er auðvelt að segja að þetta hefði ekki átt að vera svona, þetta hefði ekki átt og þetta hefði ekki þurft. Maður getur ekki lifað með því að segja alltaf „hefði ekki“. Þetta gerðist, svona var þetta og það er upp að mér komið að ákveða hvernig áhrif þetta mun hafa á mig. Ég vil vera sterk! Ég er sterk! Ég vil vera venjuleg! Ég er venjuleg! Maður getur alltaf allavega reynt að gera gott úr öllu! Ég ákvað að verða ekki eins og hún! Ég ákvað að þetta myndi ekki hafa alvarleg áhrif á mig. Ég læri af þessu! og ég vona að þið lærið af þessu líka!“

Úrsúla segir að hún megi aldrei gleyma því að mamma hennar elska hana og að hún myndi gera allt fyrir hana ef hún gæti.

„Ég er ekki að segja að ég hafi komið 100% heil út úr þessu, alls ekki! Það tekur tíma og þroska. Þetta hafði sínar afleiðingar eðlilega en það er mitt að sætta mig við þessar afleiðingar og verða betri. Það hafa allir sína kosti og galla. Ef mig vantar hjálp þá leita ég mér hjálpar því það er ekkert það sem maður þarf að skammast sín fyrir. Ef eitthvað er þá sýnir það bara hvað maður er sterkur að viðurkenna það fyrir sjálfum sér. Ég var mjög lengi og treg við það að leita mér hjálpar því ég var alveg föst á því að það væri ekkert að mér, ég er alveg jafn eðlileg og þið hin og að það þarf ekkert að vera að þótt ég hafi lent í þessu. Ég áttaði mig nýlega á því að ég þurfi í alvörunni hjálp. En það er vegna þess að ég hafði ekki þurft að takast á því áður. Þegar ég byrjaði í sambandi fyrir tæpum tveimur árum þá kom í ljós margir hlutir sem ég þarf hjálp við.“

Mikilvægt að passa upp á sjálfan sig

Að lokum segir Úrsúla að fólk í slíkum aðstæðum megi ekki missa sjónar af sjálfu sér.

„Ekki gleyma því að foreldrar þínir, systir, bróðir, amma eða afi, frænka eða frændi, jafnvel vinur þykja alltaf vænt um þig. Ekki berja þig niður fyrir eitthvað sem þú getur ekki breytt. Ef að einhver segir við þið að þú sért ekki nógu góð/góður þá er það þeirra vandamál en auðvitað á maður alltaf að vera tilbúin til þess að líta í eigin barm og reyna laga hlutina. Spyrja hvað get ég gert ? En passa að það sé alltaf upp að eðlilegum mörkum. Maður má alls ekki detta í það að verða undirgefin og meðvirkur. Þegar maður finnur milliveginn þá er mjög gott að halda sér þar. Ég er auðvitað enginn menntaður sálfræðingur eða eitthvað slíkt en ég segi þetta af minni reynslu. Alltaf að vera tilbúin til að ræða hlutina og opna hugan, líta á allt úr öllum sjónarhornum. Við vitum öll að t.d. móðir mín var ekki að reyna gera sér og öðrum þetta, þetta er eitthvað sem hún hefði ALDREI valið ef hún hefði fengið því ráðið.

Lokaorð nr. 2: Ég er svo óendanlega þakklát fyrir allt sem fjölskyldan mín hefur gert fyrir mig! Afi og amma á Eskifirði sem að gerðu allt til þess að hjálpa mér, Barnaverndarnefnd fyrir að bjarga mér úr þessum aðstæðum og tvær fósturfjölskyldur sem leyfðu mér að búa hjá sér. Þið vitið öll hver þið eruð og ég vil bara segja TAKK!! Ég væri mögulega ekki hér í dag án ykkar !

Takk mamma fyrir að vera búin að vera edrú í 5 ár og gefa mér bestu, fallegustu og skemmtilegustu systur í heiminum!

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum Fósturbörn þar sem rætt var við Lindu og Úrsúlu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×