Innlent

Maður grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum áfram í gæsluvarðhaldi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað dætrum sínum þegar þær voru í kringum sex ára aldur og er talinn hættulegur umhverfi sínu
Maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað dætrum sínum þegar þær voru í kringum sex ára aldur og er talinn hættulegur umhverfi sínu Vísir/Heiða
Hæstiréttur staðfesti í dag áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur dætrum sínum. Maðurinn hlaut einnig árið 1991 tíu mánaða dóm fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn þriðju dótturinni, þeirri elstu.

Þann 29. nóvember síðastliðinn dæmdi Héraðsdómur Suðurlands manninn í gæsluvarðhald allt til miðvikudagsins 27. desember 2017 klukkan 16. Var það gert á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Maðurinn kærði en Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn í dag.

Neitar sök í báðum málum

Lögreglan á Suðurlandi hefur nú til rannsóknar ætluð kynferðisbrot kærða gegn yngstu dóttur hans þegar hún var fimm til sex ára gömul. Í úrskurðinum kemur fram að rannsóknin sé á lokastigi. Faðirinn var handtekinn þann 31. október en hann neitar sök.

Að mati lögreglu er framburður stúlkunnar afar trúverðugur. Ekkert hafi komið fram sem gefi tilefni til að draga frásögn hennar í efa. Framburður föðurins styðji í öllum tilfellum framburð dótturinnar þótt hann neiti sök. Tvö vitni hafa nú sagt frá því að stúlkan hafi sagt þeim frá brotunum.

Auk framangreinds máls er til ákærumeðferðar hjá héraðssaksóknara mál þar sem kærða sé gefið að sök að hafa ítrekað brotið kynferðislega gegn næst elstu dóttur sinni þegar hún var fimm til sex ára. Telst málið líklegt til sakfellis en málin eru rannsökuð saman. 

Allt að sextán ára fangelsi

Í gæsluvarðhaldsúrskurði hæstaréttar frá því í dag kemur fram að með vísan til þeirra gagna sem lögð hafa verið fram í málinu er fallist á það mat lögreglustjóra að kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um kynferðisbrot gegn tveimur ungum dætrum sínum og er talið að brot hans varði við 194. gr., 200. gr. og 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot hans geta varðað allt að 16 ára fangelsi.

Lögreglustjóri telur að umrædd brot séu þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilefni til almannahagsmuna. Óforsvaranlegt sé að kærði gangi laus þegar sterkur grunur leiki á að hann hafi framið svo alvarleg brot og sé hann því hættulegur umhverfi sínu. Í úrskurðinum kemur fram að það stríði gegn réttarvitund almennings gangi hann laus meðan mál hans séu til meðferðar.

Dóm Hæstaréttar má lesa hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×