Innlent

Taka á ofbeldi í Samfylkingunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. Vísir/Anton Brink
Samfylkingin vinnur þessa dagana að því að taka upp verkferla sem gera eiga flokknum kleift að taka á kynferðisbrotum, kynferðislegri áreitni og einelti. Logi Einarsson, formaður flokksins, segir vinnuna fyrst og fremst hafa miðað að atvikum sem verði milli félagsmanna Samfylkingarinnar.

Hugsanlegt er að sú vinna verði útfærð öðruvísi eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, lýsti um helgina upplifun sinni af þeim mótmælum sem voru fyrir framan heimili hennar vorið 2010 og þegar hvatt var til þess í opinberum skrifum að hún yrði beitt kynferðislegu ofbeldi.

„Ég hef sagt að það sé sjálfsagt mál að skoða hvort og þá með hvaða hætti við hefðum getað sýnt henni meiri stuðning í þessu tilfelli,“ segir hann.

Logi telur ekki hægt að skoða þá atburðarás sem varð öðruvísi en í tengslum við #metoo byltinguna. „Við sjáum að konur hafa orðið verr fyrir barðinu á þessu umhverfi en við karlarnir,“ segir hann.

Þessi mál voru á dagskrá fundar framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar í gær.

„Við erum að móta verkferla og skipa fagráð sem tekur á þessum málum. Ég vona að það verði samþykkt að við tökum þetta mál sérstaklega og förum yfir það. Það verður fyrst og fremst gert til þess að fyrirbyggja að svona geti gerst aftur. Það verður ekki settur á fót einhvers konar dómstóll,“ segir Logi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×