Innlent

Hafnað að fjarlægja tíkina Rökkvu af heimili sínu þrátt fyrir bit

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Rökkva er af tegundinni Alaskan Malamute. Það skal tekið fram að hundurinn á myndinni er ekki Rökkva heldur er þetta þýskur hundur af sömu tegund.
Rökkva er af tegundinni Alaskan Malamute. Það skal tekið fram að hundurinn á myndinni er ekki Rökkva heldur er þetta þýskur hundur af sömu tegund. vísir/getty
Hundurinn Rökkva verður ekki fjarlægður af heimili sínu að Álfhólsvegi 145. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar í umhverfis- og auðlindamálum (ÚUA).

Álfhólsvegur 145 er tvíbýli og býr Rökkva, sem er af tegundinni Alaskan Malamute, á neðri hæð hjá eigendum og þremur öðrum hundum. Á efri hæðinni er tvo hunda að finna en þeir eru í eigu Semu Erlu Serdar.

Atvik málsins eru þau að í mars á þessu ári var annar hunda Semu úti í garði ásamt Rökkvu. Niðurstaðan varð sú að Rökkva beit hundinn og Semu. Sex mánuðum síðar beit Rökkva hinn hund Semu.

„[Sema] þori ekki inn á lóðina nema hún viti að enginn sé heima á neðri hæðinni þar sem íbúar þar hafi haldið áfram að hleypa hundunum eftirlitslausum út, einnig hundinum sem hafi bitið kæranda,“ segir meðal annars í rökstuðningi Semu fyrir nefndinni.

Í athugasemdum eigenda Rökkvu segir að henni standi ógn af öðrum hundum og hún bregðist við þeim á árásargjarnan hátt. Í bæði skiptin sem óhöpp hafi orðið hafi íbúi efri hæðarinnar sett hunda sína út á meðan þeirra hundar voru úti.

Niðurstaða heilbrigðisnefndar, sem kærð var til ÚUA, fól í sér að Rökkva væri send í atferlismat. Ekki þótti ástæða til að fjarlægja hana. Þá sagði nefndin að auðveldlega mætti koma í veg fyrir rimmur af þessu tagi.

„Ég er búin að grípa til ráðstafana svo við lendum ekki oftar í þessum hundi. Ég er auðvitað ekki sátt við úrskurðinn,“ segir Sema Erla en vill ekki tjá sig um málið að öðru leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×