Skoðun

Ábyrg ferðaþjónusta – eykur samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir og Ketill Berg Magnússon skrifar
Meðvitund um samfélagsábyrgð fyrirtækja er sífellt að aukast og æ fleiri fyrirtæki hafa breytt verklagi sínu svo þau hafi jákvæðari áhrif á samfélag sitt og náttúruna með því að hafa ábyrga ferðaþjónustu sem eðlilegan hluta af sínum rekstri.

Frá því í janúar á þessu ári hafa Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn boðið fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum uppá fræðslufundi, vinnustofur og málþing til að hreyfa við og þróa vinnu í átt að ábyrgari stjórnun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Í upphafi árs undirrituðu yfir 300 stjórnendur fyrirtækja úr virðiskeðju ferðaþjónustu yfirlýsingu þess efnis að þau myndu setja sér markmið um fjóra meginþætti ábyrgrar ferðaþjónustu. Þessir þættir eru að tryggja öryggi ferðamanna og koma fram við þá af háttvísi, umgangast náttúruna af virðingu, virða réttindi starfsfólks og hafa jákvæði áhrif á nærsamfélag sitt. Með yfirlýsingunni skuldbundu fyrirtækin sig til að birta þessi markmið fyrir 7. desember í ár. Hafa mörg þessarra fyrirtækja núþegar birt markmiðin sín á heimasíðum sínum og sífellt fleiri bætast í þennan hóp.

Fyrirtæki sem taka virkan þátt í verkefninu hafa skiptst á þekkingu og reynslu og farið yfir þessa fjóra meginþætti skref fyrir skref, náð að byggja upp, breyta ferlum og tileinka sér alveg nýja hugsun og starfshætti. Mörg þeirra hafa komist að því að ábyrg ferðaþjónusta skilar bættum rekstri og sparar peninga.

Uppskeruhátið Ábyrgar ferðaþjónustu verður þann 7. desember þegar fyrirtækin koma saman og fara yfir árið. Þeim fyrirtækjum sem hafa skrifað undir yfirlýsinguna er fylgt eftir með því að gera athugun á sýnileika markmiðanna og svo í framhaldi hversu vel hefur gengið að innleiða og mæla árangur. Á uppskeruhátíðinni verður sjónum beint að fyrirtækjum sem ráðist hafa í hugvitsamar aðgerðir sem ætlað er að skila auknu virði fyrir samfélagið og fyrirtækið sjálft án þess að það sé á kostnað náttúrunnar. Staldrað verður við og metið hvernig til hefur tekist á þessu ári, auk þess sem kúrsinn er settur fyrir nánustu framtíð. Sjálfbær ferðaþjónusta á Íslandi er mikilsvert markmið sem ekki næst nema fyrirtæki í ferðaþjónustu stigi raunveruleg skref í átt að aukinni ábyrgð sem samtímis eru studd af markmiðum stjórnvalda

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans og Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu.




Skoðun

Sjá meira


×