Fótbolti

Theodór Elmar fékk fyrsta landsliðsmarkið sitt í jólagjöf frá FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Theodór Elmar Bjarnason fagnar markinu sem var síðan skráð sjálfsmark í fjórtán mánuði.
Theodór Elmar Bjarnason fagnar markinu sem var síðan skráð sjálfsmark í fjórtán mánuði. Vísir/Ernir
Theodór Elmar Bjarnason hefur skorað einu landsliðsmarki meira í dag en hann gerði í gær og það þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað landsleik í þessari viku. Síðasti landsleikur hans var 14. nóvember síðastliðinn.

Knattspyrnusamband Íslands segir frá því á heimasíðu sinni að markanefnd Alþjóðaknattspyrnusambandsins hafi nú ákveðið að fyrra mark Íslands í sigri á Tyrklandi í undankeppni HM 2018 verði skráð á Theodór Elmar.

Markið skoraði Theodór Elmar á Laugardalsvellinum 9. október 2016 eða fyrir 424 dögum síðan.

Ísland vann leikinn 2-0 og komu bæði mörkin á lokamínútum fyrri hálfleiks. Fyrra markið kom á 42. mínútu en Alfreð Finnbogason bætti síðan öðru marki við á 44. mínútu.

Theodór Elmar Bjarnason átti skot á 42. mínútu af 20 metra færi sem fór af tyrkneska varnarmanninum Omer Toprak og í markið.

Þetta fyrra mark Íslands var skráð sem sjálfsmark af FIFA og var þannig skráð í fjórtán mánuði en því hefur nú verið breytt. FIFA skráir nú markið á Theodór Elmar Bjarnason. Í samræmi við það hafa UEFA og KSÍ í kjölfarið breytt sinni skráningu.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

Jóhann Berg Guðmundsson fær líka stoðsendingu skráða á sig en hann átti sendinguna á Theodór Elmar í markinu. 

Theodór Elmar Bjarnason hefur spilað 38 landsleiki fyrir Ísland en þetta er fyrsta og eina landsliðsmarkið hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×