Innlent

Sprenging orðið í ávísun kódeinlyfja

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mest er aukningin á Austurlandi og Vesturlandi.
Mest er aukningin á Austurlandi og Vesturlandi. vísir/eyþór
Rúmlega helmingsaukning hefur átt sér stað í ávísunum kódeinlyfja hér á landi frá árinu 2005. Verkefnastjóri lyfjamála hjá Landlæknisembættinu segir að læknar ættu að hugsa sig vel um áður en slíkum lyfjum er ávísað.

„Meðan aðrar þjóðir hafa dregið saman notkun á slíkum lyfjum þá hefur notkunin verið að aukast hjá okkur,“ segir Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri hjá Landlækni.

Ólafur B. Einarsson
Munurinn er sérstaklega mikill sé litið til ávísana til þeirra sem eru eldri en fimmtíu ára. Sé sá aldurshópur á Íslandi borinn saman við Svíþjóð kemur í ljós að allt að þrefalt fleiri skömmtum er ávísað hér á landi.

„Við vitum að þegar fólk er komið á þennan aldur geta komið upp ýmis verkjavandamál. Það er samt ekkert sem bendir til þess að það séu fleiri slík vandamál hér á landi heldur en annars staðar. Í raun vitum við ekki hvað býr að baki,“ segir hann.

Ólafur segir að í eftirliti Landlæknisembættis með lyfjaávísunum sjáist greinilega að það séu margir einstaklingar sem fara á milli lækna til að verða sér úti um verkjalyf. „Margir nýta sér það til dæmis að tannlæknar, sem mega ávísa slíkum lyfjum, eru ekki tengdir sjúkraskrárkerfi sem aðrir læknar hafa aðgang að. Þá eru þeir ekki oft að skoða lyfjagagnagrunninn.“

Þá segir hann að einnig sé það tiltölulega lítill hópur lækna sem ávísar lyfjum í stórum stíl. Embættið sendi árlega tugi bréfa og svipti lækna leyfi til að ávísa ávanabindandi lyfjum. Einnig séu dæmi um að menn hafi verið sviptir læknaleyfinu vegna þessa.

„Þetta er yfirgripsmikið verkefni. Sem stendur erum við að endurnýja leiðbeiningar um ávísanir lyfja til að ýta við læknum til að koma málunum í betri farveg hér á landi,“ segir Ólafur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×