Guide to Iceland þriðja hraðast vaxandi tæknifyrirtæki Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2017 09:50 Xiaochen Tian, framkvæmdarstýra Guide to Iceland, og Davíð Ólafur Ingimarsson, fjármálastjóri fyrirtækisins, tóku á móti verðlaunum í París í gærkvöld.
Guide to Iceland stimplaði sig sem eitt hraðast vaxandi fyrirtæki Evrópu, Afríku og Mið-Austurlanda í alþjóðlegu Deloitte Technology Fast 500 keppninni um hraðast vaxandi tæknifyrirtæki heims. Guide to Iceland varð í þriðja sæti í keppninni en verðlaunaafhending fór fram í París í gærkvöld. Deliveroo frá Bretlandi varð í efsta sæti og Lesara Gmbh frá Þýskalandi í öðru sæti yfir hraðast vaxandi fyrirtækin.Guide to Iceland var fulltrúi Íslands í keppninni eftir sigur hér heima en fyrirtækið hefur vaxið um meira en 30.000 prósent á síðustu fjórum árum. Þá var haft eftir Sigurði Páli Haukssyni, forstjóra Deloitte á Íslandi, að líklega væru engin fordæmi fyrir slíkum vexti í íslensku viðskiptalífi. Þetta kemur fram í tilkynningu. „Við erum auðvitað svolítið svekkt að hafa ekki unnið en fyrirtækin sem lentu í fyrsta og öðru sæti eru samt sem áður mjög sterk og við erum því ánægð og stolt af árangrinum,“ segir Xiaochen Tian, framkvæmdarstýra Guide to Iceland. „Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir það mikla starf sem við höfum staðið fyrir en 2017 hefur verið frábært ár fyrir okkur. Við vonum samt að Íslendingar geti verið stoltir af því að nýsköpunarfyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu sé að sýna þennan árangur á alþjóðavísu.“ Guide to Iceland er markaðstorg fyrir íslenska ferðaþjónustu og var stofnað árið 2012. Hjá Guide to Iceland starfa yfir 50 manns á Íslandi en það hefur líka höfuðstöðvar í Beijing, Kína og Kharkiv, Úkraínu.
Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira