Innlent

Ragnar Þór birtir trúnaðarbréf frá 2014

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðríður Arnardóttir segir nýkjörinn formann hafa borið á sig dylgjur og ósannindi. Ragnar Þór svarar í sömu mynt og hvetur Guðríði til að draga orð sín til baka.
Guðríður Arnardóttir segir nýkjörinn formann hafa borið á sig dylgjur og ósannindi. Ragnar Þór svarar í sömu mynt og hvetur Guðríði til að draga orð sín til baka. Vísir
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, þvertekur fyrir að hafa nokkurs staðar haldið fram að ásakanir 34 ára Tálknfirðings á hendur honum hafi verið að undirlagi Guðríðar Arnardóttur, formanns Félags framhaldsskólakennara. Þetta kemur fram á bloggi Ragnars Þórs.

Guðríður heldur því fram á bloggsíðu sinni að Ragnar Þór og hans helstu stuðningsmenn séu að „reyna að klína þessu máli á mig og stjórn KÍ“.

„Hér gefur hún í skyn að ég haldi því fram að málið sé að undirlagi hennar eða stjórnar KÍ. Ekkert í því sem ég hef sagt eða skrifað gefur tilefni til slíkrar túlkunar. Þetta er algjörlega fráleitt og eins skýrt dæmi um dylgjur og hugsast getur. Ég skora á hana að draga þessa fullyrðingu til baka.“

Sakaði Ragnar um lygar

Guðríður sagði í pistli sínum að henni hefðu borist ábendingar um umræðu á lokuðum spjallvefjum kennara þar sem stuðningsmenn Ragnars Þórs sökuðu hana að standa að baki fyrrnefndum ásökunum sem fram eru komnar á hendur Ragnari Þór.

Þá sagði hún Ragnar ljúga því að hafa upplýst Kennarasamband Íslands um kæru á hendur sér. Það hefði hann aldrei gert og vísaði hún til fundargerða KÍ þar sem aldrei hefði verið minnst einu orði á málið. Raunar hefði ekki komið fram að málið hefði verið kært til lögreglu fyrr en í pistli Ragnars í október eftir að fyrrverandi forstöðumaður félagsmiðstöðar Norðlingaskóla steig fram í pistli.

Ragnar birtir á bloggsíðu sinni trúnaðarbréf frá lögmönnum sínum til Kennarasambandsins - Félags grunnskólakennara. Þar óskaði Ragnar eftir fjárstuðningi vegna málareksturs. Ragnar segir bréfið sanna að stjórn Kennarasambands Íslands hafi verið meðvituð um kæruna á hendur honum. Því sé ekki rétt að hann hafi haldið því leyndu.

Guðríður segir hins vegar að þar sem um trúnaðarbréf hafi verið að ræða, bréfið er merkt sem slíkt, hafi það aldrei borist stjórn KÍ. Formaður félags grunnskólakennara hafi ekki brotið trúnað með því að koma bréfinu áfram á fleiri aðila. Guðríður rekur málið á bloggi sínu.

Ekki sæmandi vinnubrögð

Ragnar segist hafa gert ráð fyrir því að málið fengi eðlilega meðferð innan Kennarahúss þótt hann hafi ekki verið í aðstöðu til að fylgjast með því.

„Eins og kemur fram í bréfinu sem Ragnar birtir er það stimplað trúnaðarmál og beint til Félags Grunnskólakennara. Þar með auðvitað er innihald þess undir trúnaði og var ekki lagt fram í stjórn KÍ. Formaður FG fór hins vegar yfir beiðni um fjárstuðning á fundi stjórnar KÍ 17. október 2014 sem var efni bréfsins. Það var því enginn í stjórn KÍ sem var upplýstur um innihald bréfsins umfram það sem hafði verið fjallað um í fjölmiðlum af Ragnari sjálfum. Ragnari er auðvitað kunnugt um að erindum sem er beint til tiltekins aðildarfélags undir trúnaði er ekki vísað annað, hvorki til stjórnar eða annara aðildarfélaga. Svo annað hvort talar hann gegn betri vitund eða af vanþekkingu um uppbyggingu Kennarasambands Íslands,“ segir Guðríður.

Ragnar bendir á móti á að bæði félög séu í haus bréfsins og þau séu bæði ávörpuð í lok þess. Það hafi verið hans skilningur að málið yrði kynnt bæði Félagi grunnskólakennara og Kennarasambandi Íslands.

Fjórir eru í framboði til varaformanns Kennarasambandsins. Ragnar gagnrýnir Guðríði fyrir orð hennar um varaformannsframbjóðandann Ásthildi Lóu Þórsdóttur, sem Guðríður segir vera stuðnings- og bandamann.

„Guðríður segir mig óheiðarlegan og lyginn. Hún notar ennfremur tækifærið til að veitast að einum frambjóðanda til varaformanns og það eftir að kosning er hafin og frambjóðendur hafa lokið baráttu sinni. Þetta eru að mínu mati vinnubrögð sem sæma ekki forystumanni í samtökum kennara. Ég hygg að einhverjir séu sammála mér um það.“

Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara.Vísir/Stefán
Fór ekki með bréfið lengra vegna trúnaðar

Ólafur Loftsson, formaður félags grunnskólakennara, bætir eftirfarandi við í ummælum við frétt Vísis:

„Í ljósi umræðu í kjölfar birtingar á trúnaðarbréfi frá lögmannsstofu í blygðunarsemismáli Ragnar Þórs Péturssonar er rétt að eftirfarandi komi fram. 

1. Bréfið kom frá lögmannsstofu ekki frá Ragnari. Ekki er hægt að líta á það sem tilkynningu um málið, heldur er þar að finna ósk um fjárhagsstuðning vegna hugsanlega málareksturs eins og fyrirsögn þess gefur til kynna. 

2. Bréfið var ekki lagt fram fyrir stjórn KÍ enda trúnaðarmál sent til Félags grunnskólakennara. Meginefni bréfsins, beiðni um fjárstuðning, var kynnt á stjórnarfundi KÍ.

Þá bætir hann við:

Bréfið er ekki sent á stjórn KÍ né á stjórn FG. Í ljósi þess að RÞP er félagsmaður FG fékk ég bréfið til afgreiðslu. Það er kyrfilega merkt trúnaðarmál og þess vegna var það ekki lagt fram í stjórn FG né stórn KÍ. Almennt séð verður maður að stíla bréf á stjórn viðkomandi félags ef ætlast er til að það sé lagt fram á stjórnarfundi. Ég virði auðvitað þann trúnað sem um er beðið og kynnti megin efni bréfsins á fundi stjórnar KÍ, sem var ósk um fjárstuðningur.“

Frétt uppfærð klukkan 12:52 með athugasemdum Guðríðar úr bloggi hennar, aftur klukkan 13:35 með athugasemd Ragnars og svo klukkan 15:05 með viðbót Ólafs Loftssonar, formanns félags grunnskólakennara.


Tengdar fréttir

Guðríður sakar Ragnar Þór um dylgjur og lygar

Ragnar talar um að hann hafi verið hrottalega heiðarlegur, já það er líklega satt því kannski er óheiðarleikinn einmitt hrottalegur heiðarleiki, segir Guðríður Arnardóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×