Innlent

Stórt skref að koma út úr skápnum eftir leiðinlegar athugasemdir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hafþór Máni er hér fyrir miðri mynd.
Hafþór Máni er hér fyrir miðri mynd. Vísir/Vilhelm
Hafþór Máni Brynjarsson, nemandi í níunda bekk í Rimaskóla, segist vilja fá meiri fræðslu um hinsegin málefni í grunnskólum.

Hafþór Máni hélt erindi á opnum fundi mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um hinsegin skólakerfi í dag. Hann kom út úr skápnum nýverið eftir nokkuð erfiða tíma.

„Þetta byrjaði allt þegar ég tók skref út úr mínum þægindaramma og setti mynd af mér máluðum á Instagram þegar ég var að fara út að borða með vinkonum mínum,“ sagði Hafþór Máni.

Hann segir að daginn eftir hafi blasað við honum fjöldinn allur af neikvæðum athugasemdum.

„Ég tók skref út úr þægindarammanum og sendur aftur á byrjunarreit. Ég fékk strax högg og fór að hugsa hvort það væru mistök að setja þessa mynd á netið.“

Hafþór Máni segist hafa dregið sig í hlé og hugsað að það væri ekki í lagi að vera samkynhneigður. Hann hafi þó að endingu ákveðið að ræða við vinkonur sínar. Í kjölfarið voru haldnir fundir með aðstoðarskólastjóra Rimaskóla um hvað væri hægt að gera í málunum.

Hafþór segist hafa farið jákvæðari út í sumarið en hann hafi samt sem áður verið var við leiðinlegar athugasemdir.

Sumir dagar erfiðari en aðrir

Hann segir það hafa verið stórt skref að segja foreldrum sínum frá samkynhneigð sinni. Það hafi þó komið á óvart hversu jákvætt fólk var í hans garð. Hann hafi viljað miðla sögu sinni og fyrst hafi honum dottið í hug að gera myndband byggt á sinni reynslu. Á endanum var lendingin sú að Skrekksatriði Rimaskóla var byggt á sögu hans.

„Allt sem kom fram á sviðinu var eitthvað sem var sagt um mig á þessum tíma eða eitthvað sem ég hugsaði,“ sagði Hafþór.

„Sumir dagar eru erfiðari en aðrir og ég er stundum hræddur um hvað öðrum finnst en ég tek einn dag í einu og reyni að vera sem jákvæðastur.“

Hann segir að aukin fræðsla á skólastigi um hinsegin málefni væri æskileg.

„Ef fræðslan væri líka í skólanum þyrftu þeir aðilar sem þurfa mest á henni að halda neyðast til að hlusta og vonandi taka þetta til sín.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×