Handbolti

Kári Garðars fær sömu dómara aftur í kvöld og honum fannst ekki eiga heima í deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu.
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu. Vísir/Stefán
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, var mjög ósáttur með dómgæsluna í leik Fjölnis og Gróttu í síðustu umferð í Olís deild karla í handbolta.

Þjálfari Gróttu lét meðal annars hörð orð falla um frammistöðu Bóasar Barkar Bóassonar og Harðar Aðalsteinssonar í leiknum.

Grótta tapaði þá 31-34 á móti Fjölni en allt ætlaði um kolla að keyra á lokamínútum leiksins.

Sjá einnig: Kári: Þetta dómarapar á ekki heima í deildinni

„Mér fannst þetta vera á köflum algjör sirkus, ég verð að segja það alveg eins og er. Þetta dómarapar á að mínu viti ekki heima í þessari deild og á þessu „leveli“. Það er bara ekki mitt að stjórna dómaramálum á Íslandi, kannski sem betur fer,“ sagði mjög ósáttur Kári í viðtali við Vísi eftir leikinn.

Dómaranefnd HSÍ hefur nú ákveðið að Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson munu líka dæma leik Gróttu í kvöld en hinn leikurinn fór fram fyrir aðeins fjórum dögum síðan.

Sjá einnig: Seinni bylgjan: Dómararnir byrja að reka út af fyrir allt

Grótta heimsækir þá Íslandsmeistara Valsmanna á Hlíðarenda en þetta er einn af fimm leikjum í Olís deild karla í kvöld.

Bóas Börkur og Hörður dæmdu líka þegar Grótta tapaði á heimavelli á móti Aftureldingu fyrr í vetur. Þetta verður því þriðji leikurinn sem þeir dæma hjá Gróttu í Olís-deildinni í vetur.

Leikur Vals og Gróttu hefst klukkan 19.30 en á sama tíma spila Selfoss og Stjarnan á Selfossi og ÍR tekur á móti Haukum í Austubergi. Leikur ÍBV og Aftureldingar hefst klukkan 18.00 í Eyjum og lokaleikur kvöldsins fer síðan fram í Garfarvogi þar sem Fjölnir tekur á móti Víkingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×