Hjón kæra Garðabæ fyrir að loka vegi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. nóvember 2017 06:00 Lokað verður á tengingu milli Herjólfsbrautar og Garðahraunsvegar. vísir/eyþór
Hjón sem búa við Heiðvang í Hafnarfirði hafa kært Garðabæ vegna áforma um að loka vegtengingu á milli sveitarfélaganna. Í bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála krefjast hjónin þess að deiliskipulag fyrir Garðahraun sem Garðabær samþykkti í haust verði fellt úr gildi hvað snertir lokun vegtengingar milli Herjólfsbrautar og Garðahraunsvegar. Hjónin segjast hafa verið meðal þeirra sem árangurslaust hafi mótmælt breytingunni á deiliskipulaginu áður en hún var samþykkt. Segja þau breytinguna verulega íþyngjandi fyrir íbúa hverfisins. „Ekki hafa verið færð nein rök fyrir að loka tengingunni,“ segir í kærunni. Vegur sem hafi verið lagður fyrir opinbert fé og notaður áratugum saman verði ekki lengur í boði fyrir verulegan hluta þeirra sem noti hann daglega. „Þetta veldur því að umferð um hverfi kæranda verður þyngri og erfiðari þar sem lokað er á mikilvæga tengingu milli samfélaga. Þetta felur í sér veruleg óþægindi fyrir umrætt hverfi með tilheyrandi afleiðingum,“ segja hjónin í kærunni og nefna lækkun fasteignaverðs á svæðinu sem dæmi um hugsanlega afleiðingu. „Að mati kæranda er hér verið að opna á þróun sem getur ekki talist heppileg þar sem eitt sveitarfélag fer þá leið að loka vegtengingu við annað bæjarfélag án þess að þurfa að taka á nokkurn hátt tillit til hagsmuna íbúanna í hinu sveitarfélaginu,“ segir áfram í kærunni. Hún var lögð fram í bæjarráði Garðabæjar sem fól Gunnari Einarssyni bæjarstjóra meðferð málsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira