Innlent

Fundur formanna í ráðherrabústaðnum hafinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Formennirnir við upphaf fundar í ráðherrabústaðnum í morgun.
Formennirnir við upphaf fundar í ráðherrabústaðnum í morgun. Vísir/Ernir
Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna komu til fundar í ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu um klukkan 9:30 í morgun. Hlé var vert á viðræðunum formannanna á föstudag vegna Miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem fram fór á fösudag og laugardag.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun funduðu formennirnir ekki í gær en ræddu þó saman í síma. Enn er unnið að því að hnýta lausa enda í málefnasamningi flokkanna. Skipting ráðuneyta verður ekki tekin fyrir fyrr en í lok viðræðna flokkanna, þegar málefnasamningur liggur fyrir.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, tjáði Vísi í gær að ekki væri hægt að segja til um hvenær viðræðum flokkanna lykil. Biðin skýrðist af því að flokkarnir væru að vanda sig við vinnu sína.

„Þetta eru, eðli málsins samkvæmt, þrír ólíkir flokkar og við viljum vanda okkur. Við höfum verið að gera það sem er óvenjulegt í svona viðræðum, við höfum verið að hitta aðra aðila eins og aðila vinnumarkaðarins og Landlækni og fleiri aðila sem er óvanalegt en það er af því að okkur finnst mikilvægt að vanda okkur.“

Katrín ræddi við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um helgina og upplýsti hann um stöðu mála. Guðni sagði í tilkynningu mánudaginn 13. nóvember að að vænta væri í lok vikunnar, þ.e. nýliðinnar viku, hvort viðræður flokkanna þriggja myndu skila árangri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×