Innlent

Loka vegum vegna veðurs

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vindaspá Veðurstofu Íslands á miðnætti í kvöld.
Vindaspá Veðurstofu Íslands á miðnætti í kvöld. veðurstofa íslands
Vegagerðin hefur lokað Siglufjarðarvegi sem og veginum um Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóða. Verða vegirnir ekki skoðaðir fyrr en í birtingu í fyrramálið að því er segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Samkvæmt vegkorti á vef Vegagerðarinnar er einnig búið að loka veginum um Þverárfjall og þá verður veginum um Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti og verður hann ekki skoðaður fyrr en í birtingu á morgun.

 

„Það er smálægð skammt norður af Tjörnesi og það er hvasst vestan við hana, sem er frá Tröllaskaganum og vestur á Vestfirði en aftur á móti ekki hvasst í Þingeyjarsýslu. Þeir eru í einhvers konar svikalogni frá þessari smálægð en þetta gerist stundum í norðanátt, það að það koma svona smá hnútar með henni og þá lægir stundum á afmörkuðu svæði en herðir á annars staðar í staðinn,“ segir Teitur Arason, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Það er því hvassviðri eða stormur og áköf snjókoma á Norðvesturlandi og yfir á Vestfirði en að sögn Teits verður norðanáttin ríkjandi í þessari viku.

„Það er svona misjafnlega hvöss norðanátt en þó alltaf þannig að hún verður verulega til trafala. Spáin gerir ráð fyrir því að þetta fari svona að ganga niður á laugardaginn,“ segir Teitur. Það sé því hvassviðri og snjókoma í kortunum norðanlands og þá gætu landsmenn sunnan heiða einnig fundið fyrir norðanáttum í öflugum vindstrengjum.

Veðurhorfur á landinu samkvæmt vef Veðurstofu Íslands:

Norðan 13-23 í kvöld, hvassast NV-til, en mun hægari á A-verðu landinu. Snjókoma á Vestfjörðum og Norðurlandi, annars víða él.

Norðaustan 15-23 með snjókomu og síðar éljum á morgun, en úrkomulítið á SV-lands. Dregur úr vindi norðan heiða síðdegis. Frost 0 til 7 stig.

Á miðvikudag:

Norðan og norðaustan 13-18 m/s, en 18-23 á Suðausturlandi síðdegis og einnig á stöku stað við fjöll suðvestanlands. Snjókoma eða él norðan- og austanlands, en þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.

Á fimmtudag og föstudag:

Norðan hvassviðri eða stormur. Snjókoma eða él, en úrkomulaust um sunnanvert landið. Áfram frost um allt land.

Á laugardag:

Allhvöss eða hvöss norðanátt í fyrstu með éljum á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan heiða. Fer að lægja eftir hádegi, fyrst vestantil á landinu. Frost 0 til 7 stig.

Færð og aðstæður á vegum:

Það er hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Suðurlandi.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vesturlandi og eitthvað um éljagang. Snjóþekja og mjög mikil skafrenningur er á Holtavörðuheiði og slæmt ferðaveður.  

Á Vestfjörðum og á Norðurlandi fer færð og veður versnandi. Hálka eða snjóþekja og éljagagnur eða skafrenningur á flestum leiðum á láglendi en þæfingur eða þungfært og skafreningur á fjallvegum og ekkert ferðaveður.

Búast má við að færð spillist fljótlega eftir að þjónustu líkur á Norðurlandi og Vestfjörðum.

Á Austur- og Suðausturlandi er víða hálka eða snjóþekja en greiðfært frá Norðfirði suður að Höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×