Fótbolti

Kristinn yfirgefur Sundsvall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn lék um tíma með Columbus Crew í Bandaríkjunum.
Kristinn lék um tíma með Columbus Crew í Bandaríkjunum. vísir/pjetur
Kristinn Steindórsson hefur yfirgefið herbúðir Sundsvall. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Kristinn, sem er 27 ára, hefur leikið með Sundsvall undanfarin tvö ár. Á síðasta tímabili lék hann 25 leiki í sænsku úrvalsdeildinni en tókst ekki að skora.

Kristinn hélt út í atvinnumennsku eftir tímabilið 2011. Hann lék með Halmstad í þrjú ár og fór svo til Columbus Crew í bandarísku MLS-deildinni. Þaðan fór hann svo til Sundsvall.

Kristinn er uppalinn hjá Breiðabliki og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu á árunum 2009-10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×