Bönnuðu Tryggva að spila með Íslandi en gáfu honum svo ekki sekúndu í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. nóvember 2017 20:42 Tryggvi Snær í leik með Valencia. mynd/valencia
Íslenski landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason sat allan tímann á varamannabekknum hjá Valencia í kvöld þegar að liðið tapaði fyrir Brose Bamberg frá Þýskalandi í Meistaradeildinni í körfubolta á dramatískan hátt, 83-82. Tryggvi hefur fengið örfáar mínútur hér og þar með spænsku meisturunum en hann var keyptur sem framtíðarmaður frá Þór á Akureyri og er ekki ætlað stórt hlutverk á þessu tímabili. Honum er, aftur á móti, ætlað mun stærra hlutverk með íslenska landsliðinu sem mætir Tékklandi annað kvöld í fyrsta leik liðsins í undankeppni HM 2019. Leikurinn fer fram í Tékklandi. Euroleague eða Meistaradeildin, sem er einkarekin deild, er í stríði við FIBA og virðir ekki nýja leikdaga í svokölluðu landsleikjavikum eins og tíðkast í fótbolta og handbolta. Leikdagar í Meistaradeildinni eru settir á dagskrá á nánast sama tíma og landsleikirnir. Valencia vildi því ekki sleppa Tryggva til móts við íslenska landsliðið þrátt fyrir að þurfa í raun ekkert á honum að halda þessa dagana. Í staðinn fyrir að fá góðar mínútur með strákunum okkar þarf hann að dúsa á bekknum hjá spænska liðinu. Vonir standa þó til að Tryggvi fái að koma til Íslands og spila seinni leikinn í þessari landsleikjaviku en það er leikur á móti Búlgaríu í Laugardalshöll á mánudaginn.
Körfubolti Tengdar fréttir Tómas Þórður og Axel inn í landsliðshópinn Craig Pedersen, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum fyrir leikina í undankeppni HM 2019. 19. nóvember 2017 14:52 Mest lesið Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Golf Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Sport Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Fleiri fréttir Þorleifur áfram með Grindavík Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Landsliðsmaður snýr heim úr atvinnumennsku og semur við Stjörnuna Alba Berlin tapaði úrslitaeinvíginu án Martins Hulda verður áfram hjá Grindavík Ho You Fat í Hauka Þorvaldur Orri kemur aftur til KR Luka ósáttur með dómgæsluna: „Aldrei komið fyrir mig áður“ Spurðu hvort Friðrik vildi ekki frekar bíða eftir starfi hjá karlaliði Boston með níu fingur á titlinum Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Segist tilbúinn að deyja á vellinum en fær líklega ekki að spila Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Jóhann Árni til Hattar Grindvíkingar sækja Bandaríkjamann norður og Mortensen framlengir Boston tók forystuna í úrslitunum með öruggum sigri Porzingis klár í kvöld og spenntur fyrir úrslitaeinvígi gegn gömlu félögunum Martin ekki meira með á tímabilinu en Alba Berlin komst í úrslit Valur byrjað að styrkja sig fyrir næstu leiktíð Sjá meira
Tómas Þórður og Axel inn í landsliðshópinn Craig Pedersen, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum fyrir leikina í undankeppni HM 2019. 19. nóvember 2017 14:52