Búið að úrskurða í öllum kærum varðandi nýjan þjóðveg Sigrún Birna Steinarsdóttir skrifar 24. nóvember 2017 09:18 Gamla brúin yfir Hornafjarðarfljót. vísir/friðrik þór
Búið er að úrskurða í öllum kærum varðandi nýjan þjóðveg yfir Hornafjarðarfljót. Þar á meðal kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun bæjarstjórnar Hornafjarðar frá 1. desember 2016 um að veita framkvæmdaleyfi vegna Hringvegar milli Hólms og Dynjanda. Framkvæmdir eru nú þegar hafnar á veginum á Mýrum en Vegagerðin á þó eftir að semja við nokkra landeigendur. Í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að fyrirhuguð framkvæmd hafi verið metin með fullnægjandi hætti í því mati sem fram fór á umhverfisáhrifum við gerð nýs vegar. Að mati kærenda hefur sú leið sem samþykkt var að fara óafturkræf umhverfisáhrif enda mikið lífríki í firðinum. Deila um nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót hefur núna staðið yfir í rúman áratug. Lagðar voru fyrir þrjár leiðir, leið 1, 2, 3 og síðar leið 3b. Leið 3b var valin því sú breyting hafði mesta styttingu á Hringveginum. Úrskurðarnefnd taldi að samfélagslegur ávinningur af vali á leið 3b vægi þyngra en neikvæð umhverfisáhrif hennar umfram leið 1, sem hefur minni umhverfisáhrif en fyrrnefndar leiðir. Umferðaröryggi til almannahagsmuna verður að telja brýna ef sýnt þykir að ein veglína leiði til meira umferðaröryggis umfram aðra. Stór hluti þess svæðis sem fyrirhugaðar veglínur fara í gegn er aðallega landbúnaðarland, að mestu tún og beitilönd. Bæði í Nesjum og á Mýrum er mikið um landbúnaðarlandslög, þar sem umhverfinu hefur verið breytt til þess að nýta það í landbúnað. Slegin tún, beitilönd, skurðir, kartöflugarðar og skógrækt falla undir flokkinn landbúnaðarlandslag en landbúnaðarlandslög njóta ekki sérstakrar verndar sem slík. Með þessum breytinum mun Hringvegurinn styttast um 12 til 13 kílómetra og verður í kjölfarið þremur einbreiðum brúum færri. Formaður bæjarráðs Hornafjarðar, Sæmundur Helgason, fagnar þessum niðurstöðu og er því ekkert til fyrirstöðu að setja fullan kraft í framkvæmdir. Segir hann að þessi samgöngubót og vegstytting sé umtalsverð og hefur mikla þýðingu fyrir íbúana, styttir vegalengdir í þjónustuna á Höfn og stóreykur umferðaröryggi. Skólaakstur mun til að mynda styttast um 26 km á dag. Treystir hann því að ríkið standi við samþykkta vegaáætlun frá hausti 2016 og komi með fjármagn í væntanlegum fjárlögum.
Tengdar fréttir Hornafjarðarbrú boðin út í skugga átaka um veglínu Vegagerðin hefur boðið út fyrsta áfanga nýrrar brúar yfir Hornafjörð. Bæjarstjórinn segir þetta mikla samgöngubót. Andstæðingar segjast ætla að leita til dómstóla. 14. september 2017 21:30 Byrjað á Hornafjarðarbrú og Berufjarðarbotni á þessu ári Berufjarðarbotn, Dettifossvegur, Teigsskógur og Hornafjarðarfljót fá mest af því 1.200 milljóna króna viðbótarfé sem ríkisstjórnin ákvað í dag að verja til vegagerðar á þessu ári. 24. mars 2017 18:45 Tillögur um stórframkvæmdir í vegamálum koma fram fyrir haustið Samgönguráðherra segir brýnt að ráðast í mörg stór samgönguverkefni sem kosti tugi og jafnvel hundruð milljarða. 13. júlí 2017 19:30 Nýja brúin sem lætur menn hossast minna í Hornafirði Hún verður önnur mesta stytting hringvegarins frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð. 9. maí 2016 20:45 Mest lesið Sindri Freyr er látinn Innlent Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Innlent Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Innlent Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Innlent Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Innlent „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Fleiri fréttir Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Sjá meira
Hornafjarðarbrú boðin út í skugga átaka um veglínu Vegagerðin hefur boðið út fyrsta áfanga nýrrar brúar yfir Hornafjörð. Bæjarstjórinn segir þetta mikla samgöngubót. Andstæðingar segjast ætla að leita til dómstóla. 14. september 2017 21:30
Byrjað á Hornafjarðarbrú og Berufjarðarbotni á þessu ári Berufjarðarbotn, Dettifossvegur, Teigsskógur og Hornafjarðarfljót fá mest af því 1.200 milljóna króna viðbótarfé sem ríkisstjórnin ákvað í dag að verja til vegagerðar á þessu ári. 24. mars 2017 18:45
Tillögur um stórframkvæmdir í vegamálum koma fram fyrir haustið Samgönguráðherra segir brýnt að ráðast í mörg stór samgönguverkefni sem kosti tugi og jafnvel hundruð milljarða. 13. júlí 2017 19:30
Nýja brúin sem lætur menn hossast minna í Hornafirði Hún verður önnur mesta stytting hringvegarins frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð. 9. maí 2016 20:45