Handbolti

Góð ferð suður hjá Akureyrarliðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KA-menn hafa unnið alla níu leiki sína í Grill 66 deildinni.
KA-menn hafa unnið alla níu leiki sína í Grill 66 deildinni. vísir/ernir
KA er áfram með fullt hús stiga á toppi Grill 66 deildar karla í handbolta eftir 23-25 sigur á Val U í kvöld.

KA er með fjögurra stiga forskot á Akureyri sem valtaði yfir HK, 19-29, á útivelli í dag.

Dagur Gautason skoraði sjö mörk fyrir KA á Hlíðarenda í dag. Færeyska skyttan Aki Egilsnes var með sex mörk og Sigþór Gunnar Jónsson með fimm. Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk fyrir Val U.

Hafþór Vignisson var markahæstur hjá Akureyri gegn HK. Hann skoraði sjö mörk. Úkraínumaðurinn Ihor Kopyshynskyi var með fimm mörk.

Elías Björgvin Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir HK sem er í 3. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×