Innlent

Fengu ekki ítarlega kynningu á málefnasamningnum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þingflokkur Framsóknar vildi ekki leyfa ljósmyndurum að mynda fundinn í dag. Myndin er frá þingflokksfundi fyrr í mánuðinum.
Þingflokkur Framsóknar vildi ekki leyfa ljósmyndurum að mynda fundinn í dag. Myndin er frá þingflokksfundi fyrr í mánuðinum. vísir/anton brink
Það var gott hljóð í Ásmundi Einari Daðasyni, þingmanni Framsóknarflokksins, þegar Vísir náði tali af honum eftir þingflokksfund í dag. Hann sagði fundinn hafa gengið vel en þar hefði þó ekki verið farið ítarlega í málefnasamning Framsóknarflokks, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks.

Ásmundur sagði þingflokkinn hafa fengið grófu línurnar í samningnum en annars hefði aðallega verið farið yfir tímaramma næstu daga.

Aðspurður hvenær hann eigi von á því að þingflokkurinn fái ítarlegri kynningu á málefnasamningnum sagði hann að það verði allavega ekki í dag en þó fyrir miðstjórnarfund sem búið er að boða til á miðvikudag.

 

Þá sagði Ásmundur að ekki hafi verið rætt um ráðherraskipan í þingflokknum.

„Það verður ekki gert fyrr en ljóst er að málefnasamningurinn hafi hlotið samþykki í stofnunum flokkanna, eða ég ímynda mér það, því það er náttúrulega engum embættum til að skipta ef menn hafa ekki náð saman um málefnin og stofnanirnar hafa ekki samþykkt það,“ sagði Ásmundur.

Honum líst vel ríkisstjórnarsamstarfið með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum og segist skynja almenna jákvæðni gagnvart því.

En hafa Framsóknarmenn ekki áhyggjur af þeirri ólgu sem er innan VG varðandi myndun þessarar ríkisstjórnar?

„Ég held að þessi ríkisstjórn sé bara sterk og öflug og vonast til þess að málefnasamningurinn geri það að verkum að menn hafi náð málamiðlun í málum þannig að hún geti farið vel af stað. Ég er bara mjög bjartsýnn á það.“


Tengdar fréttir

„Við erum við bryggjuna“

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að formennirnir nái að ganga frá lausum endum í viðræðunum í dag.

Allir vilja fá samgöngumálin

Þingflokkar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks munu funda í hádeginu í dag um innihald stjórnarsáttmála flokkanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×