Handbolti

Langt ferðalag hjá Eyjamönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eyjamenn fagna í vetur.
Eyjamenn fagna í vetur. vísir/ernir
ÍBV mun mæta liði frá Ísrael í 16-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta.

Liðið heitir Ramhat Hashron en ísraelska liðið fór sannfærandi áfram í síðustu umferð er það mætti Konjuh Zivince frá Bosníu. 63-48 samtals fyrir ísraelska liðinu.

Eyjamenn unnu aftur lið HC Gomel frá Hvíta-Rússlandi í tveimur leikjum.

Fyrri leikurinn fer fram í Eyjum þann 10. eða 11. febrúar en síðari leikurinn ytra fer fram viku síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×