Innlent

Afhjúpa ný skilti við Esjuna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Banaslys hafa orðið í Esjunni, síðast fyrir um ári.
Banaslys hafa orðið í Esjunni, síðast fyrir um ári. Vísir/Vilhelm
Þrjú ný upplýsingaskilti hafa verið sett upp við vinsælar gönguleiðir á Esjuna. Skiltin verða afhjúpuð klukkan 13 í dag rétt ofan við bílastæðið hjá aðalgönguleiðinni á Þverfellshorn. Um er að ræða samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Safetravel.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að margir vanmeti aðstæður á Esjunni að vetrarlagi. Fólki sé tamt að skokka á fjallið sér til ánægju eða yndisauka en þegar vetur tekur völdin, eins og um þessar mundir, breytist aðstæður.

„Fjallið fer úr því að verða flestum fært yfir í að fólk þarf snjóflóðabúnað og fjallabúnað eins og brodda og ísaxir, ætli það eitthvað annað um fjallið en neðsta hluta vinsælla gönguleiða.“

Þá er minnt á að banaslys hafi orðið í Esjunni.

„Síðustu áratugina er Esjan það einstaka íslenska fjall sem hefur tekið flest mannslíf, líklega flest að vetrarlagi. Skemmst er að minnast slys fyrir góðu ári þegar ungur drengur lét þar lífið.“

Á upplýsingaskiltunum þremur má finna helstu upplýsingar um góða ferðahegðan en auk þess árstíðahring sem sýnir vel hvað þarf að hafa í huga ætli fólk að ganga á fjallið.

Það er Árni Tryggvason, björgunarsveitarmaður og hönnuður, sem hannaði skiltið fyrir FÍ og Safetravel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×