Handbolti

Þriðji sigur lærisveina Alfreðs í röð | Níu mörk Guðjóns Vals dugðu ekki til

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð á hliðarlínunni í leiknum í kvöld.
Alfreð á hliðarlínunni í leiknum í kvöld. vísir/getty
Kiel vann sterkan þriggja marka sigur á Flensburg, 30-33, þegar liðin mættust í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Þetta var þriðji sigur Kiel í röð í Meistaradeildinni. Liðið er í 4. sæti B-riðils með 11 stig. Flensburg er í 2. sætinu með 14 stig.

Rhein-Neckar Löwen tapaði sínum öðrum leik í Meistaradeildinni þegar liðið lá fyrir Zagreb, 30-26, á útivelli.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði níu mörk fyrir Ljónin sem eru í 4. sæti A-riðils með 12 stig. Alexander Petersson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×