Fótbolti

Evra í sjö mánaða bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Patrice Evra gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Marseille.
Patrice Evra gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Marseille. vísir/getty
Patrice Evra, leikmaður Marseille, hefur verið úrskurðaður í bann frá leikjum á vegum UEFA út júní á næsta ári.

Evra fékk rauða spjaldið fyrir leik gegn Vitoria Guimares í Evrópudeildinni fyrir að sparka í höfuðið á stuðningsmanni Marseille.

Evra var einnig sektaður um 10.000 evrur, eða rúmar 1,2 milljónir króna.

Evra kom til Marseille frá Juventus í byrjun ársins. Félagið setti hann í ótímabundið bann eftir árásina á stuðningsmanninn og óvíst er hvort hann spilar aftur fyrir Marseille.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×